Fáðu rafræn fréttabréf send á netfangið þitt
Flýtilyklar
Einhverfurófið – grunnnámskeið (0423)
Einhverfurófið - grunnnámskeið
Staðsetning: Menningarmiðstöðin í Gerðubergi (sjá kort hér)
Dagsetning og tími: 27. apríl 2023 kl. 9:00 - 14:00. 6 kennslustundir.
Verð: Fagaðili: 22.900.- Aðstandandi: 6.900.-
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað aðstandendum og starfsfólki sem sinnir umönnun, þjálfun og kennslu barna á einhverfurófi.
Hámarksfjöldi þátttakenda:
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 50.
Lýsing námskeiðs:
Fjallað er um einhverfurófið, helstu einkenni einhverfu og birtingarform þeirra, greiningu, álag á fjölskylduna og samstarf foreldra og fagfólks. Námskeiðið byggist aðallega á fyrirlestrum og umræðum, auk fræðslumyndbanda. Námskeiðið er hugsað sem fyrsta skrefið í fræðslu um einhverfu og grunnur að öðrum námskeiðum með afmarkaðari viðfangsefnum. Kennslu- og meðferðarleiðir verða til dæmis ekki kynntar á þessu námskeiði.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur:
- auki þekkingu sína á einhverfurófinu
- þekki hvað felst í greiningu á einhverfu
- auki skilning sinn á þörfum þessa hóps barna og fjölskyldna þeirra og hvað felst í góðri þjónustu
- þekki mikilvægi samstarfs fagfólks og foreldra
Umsjón:
Guðrún Þorsteinsdóttir félagsráðgjafi, Ingibjörg Bjarnadóttir, barnalæknir og Svandís Ása Sigurjónsdóttir sálfræðingur.
Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar
Skráning í námskeið er skuldbindandi og jafngildir samningi um greiðslu á námskeiðsgjaldi. Skráningu á námskeiðið Einhverfurófið - grunnnámskeið lýkur 21. apríl 2023.
Greiðsluseðlar verða þá sendir í innheimtu og þurfa þátttakendur að vera búnir að greiða fyrir eindaga sem er u.þ.b. viku fyrir námskeið.
Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega a.m.k. hálfum mánuði fyrir námskeiðsdag eða áður en skráningu lýkur með því að senda tölvupóst á fraedsla@greining.is.
Ráðgjafar- og greiningarstöð áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið.
Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.