Fáðu rafræn fréttabréf send á netfangið þitt
Flýtilyklar
Atferlisíhlutun fyrir börn með þroskafrávik (fjarkennsla 0323)
Staðsetning: Fjarkennsla
Dagsetning og tími: 27.- 28. mars 2023, klukkan 09:00-16:00 báða dagana.
Verð: Fagaðili: 37.700 - Aðstandandi: 10.800.-
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Ætlað aðstandendum og starfsfólki sem starfa við skipulagningu og framkvæmd heildstæðrar atferlisíhlutunar fyrir börn með frávik í þroska í leikskólum.
Hámarksfjöldi þátttakenda:
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 40.
Lýsing
Farið er yfir helstu hugtök og aðferðir hagnýtrar atferlisgreiningar, kennslu nýrrar færni og hvernig unnt er að fyrirbyggja og minnka óæskilega hegðun í vinnu með börnum á leikskólaaldri. Einnig er fjallað um innihald og áherslur með hliðsjón af getu barnsins og um daglega framkvæmd og hlutverk ráðgjafa. Foreldrar koma og segja frá þátttöku sinni í heildstæðri atferlisíhlutun. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum og myndböndum af börnum á mismunandi getustigum.
Markmið
Að þátttakendur:
- þekki undirstöðuþætti heildstæðrar atferlisíhlutunar
- Þekki leiðir til að fyrirbyggja og minnka óæskilega hegðun barna með þroskafrávik
- þekki til þeirrar reynslu af skipulagi og framkvæmd atferlisíhlutunar í leikskólum hér á landi
Umsjón, skipulagning og kennsla:
Anna Marín Skúladóttir, atferlisfræðingur, Eva Ýr Heiðberg, atferlisfræðingur, Herdís Ingibjörg A. Svansdóttir atferlisfræðingur, Katrín Sveina Björnsdóttir atferlisfræðingur, Lilja Árnadóttir atferlisfræðingur.
Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar
Skráning í námskeið er skuldbindandi og jafngildir samningi um greiðslu á námskeiðsgjaldi. Skráningu á námskeiðið Atferlisíhlutun fyrir börn með þroskafrávik lýkur 21. mars 2023 (en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er laust pláss). Greiðsluseðlar verða þá sendir í innheimtu og þurfa þátttakendur að vera búnir að greiða fyrir eindaga sem er u.þ.b. fimm dögum fyrir námskeið.
Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega a.m.k. hálfum mánuði fyrir námskeiðsdag eða áður en skráningu lýkur með því að senda tölvupóst á fraedsla@greining.is.
Ráðgjafar- og greiningarstöð áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið.
Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.