AEPS, færnimiðað matskerfi - fjarkennsla (0323)

Kennt í fjarkennslu (Zoom) 

Dagsetning og tími: 15. og 16. mars 2023 klukkan 09:00-15:00, 16 kennslustundir, kennt í fjarfundarbúnaði (ZOOM)  Í framhaldi af námskeiði er boðið upp á hóphandleiðslu, 9 kennslustundir. Samtals 26 kennslustundir, AEPS námskeið og handleiðsla (Skráning og þjálfun sem þarf að skrá sig í sérstaklega). 

Verð: Fagaðili: 48.300 kr.-
Námskeið þetta er eingöngu ætlað fagaðilum. 

Hverjum er námskeiðið ætlað?,
Námskeiðið er ætlað fagfólki sem starfar við ráðgjöf, þjálfun eða kennslu 0-6 ára barna með þroskafrávik. Sérstaklega er mælt með þessu námskeiði fyrir sérkennslustjóra leikskóla.

Hámarksfjöldi þátttakenda:
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 20.

Lýsing
AEPS-matskerfið (Assessment, Evaluation, Programming System for Infants and Children) er hagnýtt tæki sem nýtist við gerð einstaklingsnámskrár. Lögð er áhersla á samstarf foreldra og fagfólks við gerð markmiða og sérstakur matslisti fyrir foreldra fylgir. Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig AEPS-matskerfið nýtist til að meta færni barna á sex þroskasviðum: Fín- og grófhreyfingum, vitrænum þáttum, aðlögun, félagslegum tjáskiptum og félagslegu samspili. Þátttakendur fá kennslu í að leggja listann fyrir,  nýta niðurstöður við gerð einstaklingsnámskrár og skipuleggja íhlutun í framhaldinu.

Námskeiðinu er skipt á tvo daga. Á fyrri deginum er farið yfir bakgrunn og fyrirlögn AEPS. Á seinni deginum er farið í úrvinnslu og hvernig unnið er með listann við gerð einstaklingsáætlana og í íhlutun. Að þessum tveimur dögum loknum er hóphandleiðsla í þrjú skipti þar sem þátttakendur eru aðstoðaðir við að nota AEPS og fá tækifæri til að deila reynslu sinni með öðrum. Dagsetningar verða ákveðnar í samráði við þátttakendur en þeir hafa einnig góðan aðgang að leiðbeinendum á milli daga ef spurningar vakna.

Gott er að hafa AEPS matskerfið meðferðis á námskeiðið og í handleiðsluna. Mörg sveitarfélög, þjónustumiðstöðvar og leikskólar eiga eintök og hvetjum við þátttakendur til að kanna hvort til sé í þeirra nærumhverfi.

Markmið
Að þátttakendur:

  • þekki bakgrunn og uppbyggingu AEPS matskerfisins
  • geti lagt það fyrir og nýtt niðurstöður við gerð einstaklingsáætlana og skipulagningu íhlutunar
  • nýti AEPS til að efla samstarf foreldra og fagfólks við að setja markmið og velja leiðir til að auka færni barnsins.

Umsjón:
Herdís Hersteinsdóttir, þroskaþjálfi
Inger J. Daníelsdóttir, þroskaþjálfi

Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar

Skráning í námskeið er skuldbindandi og jafngildir samningi um greiðslu á námskeiðsgjaldi. Skráningu á námskeiðið AEPS færnimiðað matskerfi lýkur 8. mars  2023 (en hægt verður að skrá sig á biðlista eftir það ef það er enn laus pláss). Greiðsluseðlar verða þá sendir í innheimtu og þurfa þátttakendur að vera búnir að greiða fyrir eindaga sem er u.þ.b. viku fyrir námskeið.

Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega a.m.k. hálfum mánuði fyrir námskeiðsdag eða áður en skráningu lýkur með því að senda tölvupóst á fraedsla@greining.is.

Athugið, að ef samkomutakmarkanir verða strangar á dagsetningum námskeiðs verður það flutt í fjarkennslu. 

Ráðgjafar- og greiningarstöð áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið.

Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.

Ráðgjafar- og greiningarstöð 
Counselling and Diagnostic Centre
Dalshraun 1b, 2. hæð | 220 Hafnarfjörður
Sími/Tel.: 510 8400 | Kennitala: 570380-0449


Afgreiðsla og skiptiborð er opið frá kl. 8.30 - 12.00 og 12.30 - 15.00 mánudaga til fimmtudaga
og föstudaga fra 8.30 – 13.00.
Reception is open Mon. to Thurs. from 8.30 - 15.00 (closed 12.00 - 12.30) and Fri. from 8.30 - 13.00.

 

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur

Fáðu rafræn fréttabréf send á netfangið þitt

Svæði