AEPS, færnimiðað matskerfi (0923)

Staðsetning: Námskeiðið verður staðbundið á höfuðborgarsvæðingu en endanleg staðsetning liggur ekki fyrir. 

Dagsetning og tími: 13. og 14. september 2023 klukkan 09:00-15:00. Í framhaldi af námskeiði er boðið upp á hóphandleiðslu, 9 kennslustundir. Samtals 23 kennslustundir.

Verð: Fagaðili: 56.900.-

Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað fagfólki sem starfar við ráðgjöf, þjálfun eða kennslu 0-6 ára barna með þroskafrávik. Sérstaklega er mælt með þessu námskeiði fyrir sérkennslustjóra leikskóla.

Hámarksfjöldi þátttakenda:
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 20.

Lýsing
AEPS-matskerfið (Assessment, Evaluation, Programming System for Infants and Children) er hagnýtt tæki sem nýtist við gerð einstaklingsnámskrár. Lögð er áhersla á samstarf foreldra og fagfólks við gerð markmiða og sérstakur matslisti fyrir foreldra fylgir. Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig AEPS-matskerfið nýtist til að meta færni barna á sex þroskasviðum: Fín- og grófhreyfingum, vitrænum þáttum, aðlögun, félagslegum tjáskiptum og félagslegu samspili. Þátttakendur fá kennslu í að leggja listann fyrir,  nýta niðurstöður við gerð einstaklingsnámskrár og skipuleggja íhlutun í framhaldinu.

Námskeiðinu er skipt á tvo daga. Á fyrri deginum er farið yfir bakgrunn og fyrirlögn AEPS. Á seinni deginum er farið í úrvinnslu og hvernig unnið er með listann við gerð einstaklingsáætlana og í íhlutun. Að þessum tveimur dögum loknum er hóphandleiðsla í þrjú skipti þar sem þátttakendur eru aðstoðaðir við að nota AEPS og fá tækifæri til að deila reynslu sinni með öðrum. Dagsetningar verða ákveðnar í samráði við þátttakendur en þeir hafa einnig góðan aðgang að leiðbeinendum á milli daga ef spurningar vakna.

Gott er að hafa AEPS matskerfið meðferðis á námskeiðið og í handleiðsluna. Mörg sveitarfélög, þjónustumiðstöðvar og leikskólar eiga eintök og hvetjum við þátttakendur til að kanna hvort til sé í þeirra nærumhverfi.

Markmið
Að þátttakendur:

  • þekki bakgrunn og uppbyggingu AEPS matskerfisins
  • geti lagt það fyrir og nýtt niðurstöður við gerð einstaklingsáætlana og skipulagningu íhlutunar
  • nýti AEPS til að efla samstarf foreldra og fagfólks við að setja markmið og velja leiðir til að auka færni barnsins.

Umsjón: 
Herdís Hersteinsdóttior, þroskaþjálfi
Inger J. Daníelsdóttir, þroskaþjálfi

Námskeiðsgjöld
Eingöngu er hægt að ljúka skráningu með með því að greiða fyrir námskeiði með kredit- eða debetkorti. Þátttakandi fær staðfestingu senda í tölvupósti á skráð netfang og kvittun fyrir greiðslu sem dugar fyrir endurgreiðslu hjá stéttarfélagi.

Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega a.m.k. 5 dögum  námskeiðsdag eða áður en skráningu lýkur með því að senda tölvupóst á fraedsla@rgr.is.

 

Dagsetning Dagar Tími Staðsetning Verð
13. sep 2023 - 14. sep 2023 mið-fim 09:00-15:00 48.300 kr. Skráning

Ráðgjafar- og greiningarstöð 
Counselling and Diagnostic Centre
Dalshraun 1b, 2. hæð | 220 Hafnarfjörður
Sími/Tel.: 510 8400 | Kennitala: 570380-0449


Afgreiðsla og skiptiborð er opið frá kl. 8.30 - 12.00 og 12.30 - 15.00 mánudaga til fimmtudaga
og föstudaga fra 8.30 – 13.00.
Reception is open Mon. to Thurs. from 8.30 - 15.00 (closed 12.00 - 12.30) and Fri. from 8.30 - 13.00.

 

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur

Fáðu rafræn fréttabréf send á netfangið þitt

Svæði