Ungbörnum með alvarleg frávik í þroska og þekkt heilkenni er gjarnan vísað beint á Greiningarstöð af sérfræðingum heilbrigðisþjónustunnar, t.d. sérfræðingum Ungbarnaverndar, Barnaspítala Hringsins eða barnadeildar FSA.
Þegar um börn á leikskóla- eða grunnskólaaldri er að ræða þarf frumgreining að hafa farið fram áður en barninu er vísað á Greiningarstöð. Það felur í sér að fyrstu athuganir og þroskamælingar fara fram í nærumhverfi barnsins á vegum sérfræðiþjónustu leikskóla, grunnskóla, heilsugæslu eða hjá sjálfstætt starfandi sérfræðingum, oftast sérhæfðum barnalæknum eða sálfræðingum.
Þegar frumgreining bendir til alvarlegra raskana á þroska er það á ábyrgð þess sérfræðings, sem framkvæmt hefur athuganir að vísa barninu formlega til Greiningarstöðvar. Sjá tilvísun - eyðublöð. Það er jafnframt á ábyrgð frumgreiningaraðila að stuðla að því að viðeigandi þjónusta, þjálfun og sérkennsla, hefjist sem fyrst.
Sjá nánar leiðbeiningar vegna tilvísunar

