Þegar grunur vaknar um alvarlegar þroskaraskanir hjá barni, hefst ferli athugana og rannsókna sem getur leitt til tilvísunar á Greiningarstöð.
Hlutverk Greiningar- og ráðgjafarstöðva ríkisins er að sinna greiningu og ráðgjöf vegna barna með alvarlegar þroskaraskanir, sem geta leitt til fötlunar, og leiðbeina um meðferðar- og íhlutunarleiðir til þess að draga megi sem mest úr afleiðingum fötlunar.
Þegar um alvarlegan meðfæddan vanda er að ræða, er barni vísað fljótlega eftir fæðingu, jafnvel beint af fæðingar- eða barnadeild. Þar má t.d. nefna börn með alvarlegan vanda er tengist byggingu og starfsemi miðtaugakerfisins. Algengustu ástæður tilvísana ungra barna á aldrinum 0-2 ára sem vísað er á Greiningarstöð eru hreyfihamlanir, almennur seinþroski, einhverfa og blinda.
Grunur um frávik í þroska getur einnig vaknað í ungbarnaeftirliti eða við komu barns í leikskóla. Ef athuganir og þroskamælingar staðfesta alvarleg frávik, leiða slíkar athuganir til tilvísunar á Greiningarstöð. Á þessum aldri eru algengustu ástæður tilvísana þroskahömlun og einhverfa.
Frávik í þroska og aðlögun skólabarna hafa í vaxandi mæli leitt til frekari athugana og tilvísana á Greiningarstöð. Með aukinni þekkingu á þroska- og námsferli barna og skilningi á mikilvægi góðrar aðlögunarfærni og velgengni í félagslegum samskiptum hafa fleiri börn og unglingar komið í athuganir á vegum sérfræðiþjónustu skóla. Þegar grunur leikur á að um þroskahömlun og/eða einhverfurófsröskun geti verið að ræða er barni/unglingi vísað á Greiningarstöð til frekari athugana og ráðgjafar.

