Tákn með tali er tjáskiptaaðferð sem upphaflega var þróuð fyrir nemendur með mál- og þroskahömlun. Aðferðin byggir á einföldum hreyfitáknum sem notuð eru á markvissan hátt til stuðnings töluðu máli. Áherslan er lögð á að tákna lykilorð hverrar setningar. TMT nýtist fólki á öllum aldri sem hefur tal- og málörðugleika af öðrum orsökum en heyrnarleysi. Undanfarin ár hefur komið í ljós að aðferðin nýtist vel í fjölmenningarlegu umhverfi. Aðferðin er málörvandi fyrir öll ung börn og því óhætt að hvetja foreldra og kennara ungra barna að nota TMT sem skemmtilegt málörvunartæki sem um leið hjálpar þeim sérstaklega sem á þurfa að halda.
Orð, hugtök
TMT – Tákn með tali
TTT – Tegn til tale (danska)
TTT – Tecken till tal (sænska)
TSS – Tecken som stöd (sænska)
Key word signing (enska)
Baby signs (enska)
Signing for hearing (enska)
Tenglar
Íslenskar heimasíður:
www.downs.is (snemmtæk íhlutun)
Efni (kennslugögn og fræðsla)
Efni útgefið af Námsgagnastofnun:
Tákn með tali 2 - Orðabók með fræðslu. Höfundar: Sigrún Grendal Magnúsdóttir og Björk Alfreðsdóttir
TMT tölvuforrit - Forritið inniheldur þau tákn sem koma fyrir í TMT 2. Höfundur: Indriði Björnsson

