Þegar grunur vaknar um alvarleg frávik í þroska eða aðlögun barns er best að leita til þess fagaðila sem best þekkir barnið og leita eftir ráðleggingum um nauðsynlegar athuganir.
Þegar um ungabörn er að ræða er eðlilegt að leita ráðgjafar hjá sérfræðingum sem sinna ungbarnavernd, til barnalæknis eða heilsugæslulæknis.
Þegar um leikskóla- eða grunnskólabörn er að ræða er best að snúa sér til kennara eða skólastjóra eða til sérfræðinga, sem hafa milligöngu um að barnið komist til athugunar og í þroskamælingar hjá sérfræðiþjónustu leikskóla og grunnskóla í sveitarfélaginu. Einnig er hægt að leita til sérfræðinga á heilsugæslustöðvum, sjálfstætt starfandi lækna og sálfræðinga og til sérfræðinga, sem starfa á þroska-og hegðunarstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (áður Miðstöð heilsuverndar barna).

