Börnum er vísað á Greiningar- og ráðgjafarstöð þegar frumgreining bendir til alvarlegra þroskaraskana, sem geta leitt til fötlunar. Markmið sértækrar þverfaglegrar greiningar er að skilgreina eðli, umfang og orsök fötlunar, meta áhrif fötlunar á líf barns og fjölskyldu og leita leiða til að bæta horfur til framtíðar.
Með greiningu er leitað svara við spurningunum:
Hvað er að?
Hvað veldur?
Hvað er til ráða?
Greining felur í sér þverfaglegt samstarf sérfræðinga úr ýmsum fagstéttum sem vinna eftir alþjóðlega viðurkenndum aðferðum til að meta eðli fötlunar. Greining felur í sér mat á þroska og færni barns í ýmsum aðstæðum í daglegu lífi. Leitast við að skilgreina heildstæða mynd af vanda og þörfum barns og fjölskyldu. Á grundvelli greiningar er veitt ráðgjöf til fjölskyldu og þjónustuaðila sem miðar að því að stuðla að sem bestri færni barns og draga úr áhrifum fötlunar.
Í greiningar- og ráðgjafarferli er unnið náið með fjölskyldum og þjónustuaðilum barnsins. Í öllum málum er lögð áhersla á að gæta fyllsta trúnaðar.

