Félagsleg réttindi og úrræði
Tryggingastofnun ríkisins (TR) s. 560 44 00, www.tr.is og Sjúkratryggingar Íslands s. 515 0000, www.sjukra.is
Tryggingastofnun ríkisins starfar skv. lögum um almannatryggingar, nr 117/1993 og lögum um félagslega aðstoð nr. 118/1993.
Sjúkratryggingar Íslands starfa skv. lögum um sjúkratrygginar nr. 112/2008
Umönnunargreiðslur
- Mánaðarlegar greiðslur til framfærenda fatlaðra barna.
- Skattfrjálsar en framtalsskyldar.
- Taka mið af umönnunarþörf og útgjöldum vegna þjálfunar.
- Mismunandi flokkar.
- Almenn leikskóla- og skólaþjónusta skerðir ekki greiðslur.
Yfirlit um flokka umönnunargreiðslna og upphæðir:1. flokkur 100% 126.667 50% 63.334 25% 31.667 2. flokkur 85% 107.667 43% 54.467 25% 31.667 3. flokkur 70% 88.667 35% 44.333 25% 31.667 4. flokkur 0 0 25% 31.667 (Upphæðir gilda frá 1. júní 2011) |
Umönnunargreiðslur skerðast vegna:
Sértækrar þjónustu sem er án endurgjalds og nemur meira en 4 klst. á dag. Umtalsverðar skammtímavistunar, 9 sólarhringa á mánuði eða meira.
Umönnunarkort
Þeir foreldrar sem fá umönnunargreiðslur, eiga rétt á umönnunarkorti sem veitir afslátt af ýmsum lyfjum og læknisþjónustu.
Börn í 1.-3. flokki eiga rétt á 90% endurgreiðslu tannlæknakostnaðar, miðað við gjaldskrá TR.
Þeir sem eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu geta leitað til Sjálfsbjargar og keypt á vægu gjaldi afsláttarkort af ýmiskonar þjónustu, s.s. á sundstöðum, söfnum og annarri íþrótta- og tómstundastarfsemi. Afsláttarkortið gildir almanaksárið.
Styrkir og lán til bifreiðakaupa
Heimilt að veita styrk/lán til framfæranda hreyfihamlaðs barns sem nýtur umönnunargreiðslna samkvæmt lögum um félagslega aðstoð. Í þeim tilvikum þarf að sýna fram á þörf á að koma barninu til reglubundinnar þjálfunar, meðferðar eða í skóla. Styrkur til barna í hjólastól er allt að kr. 1.200.000. .
Heimilt er að veita uppbót til kaupa á bifreið til hreyfihamlaðra kr. 300.000 en 600.000 til þeirra sem eru að kaupa bíl í fyrsta sinn. Læknisvottorð þarf að fylgja umsókn.
Greiðslur vegna ferðakostnaðar
T.R. tekur þátt í ferðakostnaði vegna fatlaðra barna og fylgdarmanns, samkvæmt ákveðnum reglum, í eftirtöldum tilvikum:
Nauðsynlegar ferðir að tilhlutan læknis í héraði, s.s til greiningar, meðferðar, eftirlits og endurhæfingar.
- Tvær ferðir á 12 mánaða tímabili. Miðað er við a.m.k. 20 km. vegalengd milli staða og að viðkomandi þjónusta sé ekki til staðar í heimahéraði.
Ítrekaðar ferðir, s.s. vegna þjálfunar.
- Noti foreldrar eigin bifreið til þessara ferða greiðist ákveðin upphæð á hvern kílómetra.
T.R. endurgreiðir 2/3 hluta kostnaðar af fargjaldi með áætlunarferð skv. framlögðum kvittunum.
Sé eigin bifreið notuð greiðir stofnunin 2/3 hluta kostnaðar miðað við ákveðna upphæð á ekinn kílómetra.
Mikilvægt er að foreldrar geymi bensínnótur og kvittanir fyrir flugferðum og vegtollum, (t.d. Hvalfjarðargöngunum) til að framvísa.
Greiðslur vegna sjúkra- og iðjuþjálfunar
Foreldrar þurfa að greiða 20% þjálfunarkostnaðar fyrir 25 fyrstu skiptin á 12 mánaða tímabili. Eftir það greiðir T.R. þjálfunina að fullu út árið, þ.e. það sem eftir er af 12 mánaða tímabilinu, talið frá fyrsta þjálfunarskipti.
Greiðslur vegna talþjálfunar.
Nokkrir talmeinafræðingar eru með sambærilegan samning og iðju- eða sjúkraþjálfarar við TR.
Hjá öðrum greiðist fullt gjald en hægt er að fá hluta þess endurgreiddan frá TR ef fyrir liggur samþykkt þaðan um greiðsluþátttöku.
Hjálpartæki
Sé þörf á hjálpartækjum sendir læknir vottorð og umsókn til TR, sem síðan
afgreiðir umsóknina. Sjúkra- og iðjuþjálfar barnanna sjá oft um þessi mál í samvinnu við lækna. Dæmi: hjólastólar, sérútbúnir skór, hjól, sérútbúin rúm, Boardmaker forritið o.fl.
Bleiur eru afgreiddar sem hjálpartæki fyrir fötluð börn frá þriggja ára aldri.
Félagsþjónusta sveitarfélaga.
Þann 1. janúar 2011 færðist þjónusta við fatlað fólk nær alfarið frá ríki yfir á sveitarfélögin. Sú þjónusta er veitt skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991 og lögum um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992. Misjafnt er hvernig sú þjónusta er útfærð og víða er samstarf milli sveitarfélaga um ýmis úrræði, ekki síst þar sem um minni sveitarfélög er að ræða.
Fulltrúar sveitarfélags í málefnum fatlaðs fólks hafa umsjón með þjónustu við fatlaða sem þar búa. Má þar sem dæmi nefna liðveislu, stuðningsfjölskyldur, skammtímavistun, heimaþjónustu, búsetu- og atvinnuúrræði, fjárhagsaðstoð, ráðgjöf, afgreiðslu umsókna um umönnunargreiðslur, o.s.frv.
Umönnunargreiðslur.
Umsóknir um umönnunargreiðslur fyrir fötluð börn fara í gegn um fulltrúa sveitarfélags í málefnum fatlaðs fólks, sem leggja mat á umönnunarþörf barnsins og gera tillögur um greiðslur.
Stuðningsfjölskyldur
Foreldrar geta sótt um stuðningsfjölskyldu fyrir fatlað barn sitt, til fulltrúa sveitarfélagsins í málefnum fatlaðs fólks. Að jafnaði er um að ræða dvöl hjá stuðningsfjölskyldu í 1-3 sólarhringa í mánuði.
Skammtímavistun
Fulltrúar sveitarfélags í málefnum fatlaðs fólks taka ennfremur við umsóknum um skammtímavistun og veita nánari upplýsingar varðandi búsetu- og atvinnumál fatlaðs fólks.
Liðveisla
Hægt er að sækja um liðveislu fyrir fötluð börn eftir 6 ára aldur. Tímafjöldi á mánuði er mismunandi og ræðst af þörf barnsins og fjölskyldunnar. Foreldrar geta sjálfir óskað eftir hvernig sá tími er nýttur, allt eftir þörfum barnsins.
Heimaþjónusta
Hægt er að sækja um heimaþjónustu og þarf þá vottorð eða umsögn frá lækni eða félagsráðgjafa að fylgja.
Séu tekjur foreldra yfir tilteknum mörkum, þurfa þeir yfirleitt að greiða ákveðið hlutfall af kostnaði við heimaþjónustuna.
Fjárhagsaðstoð
Sveitarfélög greiða íbúum sínum, sem eiga við fjárhagserfiðleika að stríða fjárhagsaðstoð, undir ákveðnum kringumstæðum og eftir reglum sem hvert sveitarfélag setur sér. Fjárhagsaðstoð getur einnig falist í ráðgjöf og aðstoð við að koma skipulagi á fjármál.
Önnur úrræði og ráðgjöf
Fjölskyldur í vanda geta leitað til félagsþjónustu viðkomandi sveitarfélags eftir aðstoð við að leysa úr vandamálum sínum. Dæmi: uppeldisráðgjöf, leiðbeiningar um réttindi og úrræði ýmis annar stuðningur. Í samráði við félagsráðgjafa á Greiningarstöð er þörf á aðstoð og stuðningi metin hverju sinni.
Ýmislegt
Lækkun tekjuskatts
Foreldrar geta sótt um lækkun tekjuskatts vegna veikinda eða fötlunar barna sinna, á sérstökum eyðublöðum, sem fást hjá skattstjóra.
Oftast er sótt um þessa lækkun um leið og hefðbundnu skattframtali er skilað. Umsókn þarf að fylgja læknisvottorð varðandi fötlun eða veikindi barnsins. Foreldrar þurfa að gera ítarlega greinargerð um tekjutap og/eða kostnað vegna fötlunar.
Bifreiðagjöld
Framfærendur fatlaðra barna sem eiga rétt á umönnunarbótum geta fengið niðurfelld bifreiðagjöld af einni bifreið í þeirra eigu.
- Bifreiðin má vera allt að 3,5 tonn að þyngd en ekki vera notuð til atvinnurekstrar.
- Ef um tvær bifreiðar er að ræða á heimilinu, eru gjöldin felld niður af þeirri þyngri, ef hún er undir fyrrnefndum þyngdarmörkum.
Tölvur
Tölvumiðstöð fatlaðra, Háaleitisbraut 11-13, s. 5629494 veitir ráðgjöf til einstaklinga og hópa varðandi tölvutengdan búnað, sem nýst getur fólki með ýmis konar fötlun. Foreldrar fatlaðra barna geta pantað tíma þar og fengið ráðgjöf varðandi forrit og búnað sem nýtast barninu, þeim að kostnaðarlausu.
Reglulega eru haldin ýmis námskeið á vegum Tölvumiðstöðvar fatlaðra og fá foreldrar stundum afslátt af námskeiðsgjaldi. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.tmf.is eða í síma 5629494. Forstöðumaður er Sigrún Jóhannsdóttir.
Sumarúrræði
Misjafnt er eftir landshlutum hvers konar sumarúrræði er boðið upp á fyrir börn með fötlun. Foreldrum er bent á að snúa sér til viðkomandi sveitarfélags varðandi nánari upplýsingar.
Ef foreldrar óska eftir almennum sumarúrræðum fyrir börn sín, s.s. leikjanámskeiðum eða sumarbúðum, er metið hvort barnið geti nýtt sér slíkt úrræði og hversu mikinn stuðning það myndi þurfa. Ennfremur þarf að athuga hvort slíkur stuðningur sé í boði hjá viðkomandi sveitarfélagi. Eldri börn hafa mörg hver komist að í vinnuskóla yfir sumarið.
Stæðiskort (P-merki) fyrir hreyfihamlaða
Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð um P-merki á eftirfarandi hátt:
- Á heimsíðu lögreglunnar, www.lr.is undir umsóknir
- Í afgreiðslu Sýslumannsins í Kópavogi (fyrir íbúa Reykjavíkur, Mosfellsbæjar, Seltjarnarness)
- Hjá sýslumönnum
Umsókn þarf að fylgja útfyllt umsóknareyðublað, læknisvottorð og mynd.
Systkinasmiðjan
Systkinasmiðjan er fyrir börn á aldrinum 8 - 14 ára sem eiga það sameiginlegt að eiga systkini með sérþarfir. Þar eru haldin námskeið fyrir börnin, þar sem margt skemmtilegt er brallað, farið í leiki og ýmis verkefni unnin.
Markmið námskeiðanna er m.a. að veita systkinum barna með sérþarfir tækifæri til að hitta önnur systkini í skipulögðu og skemmtilegu umhverfi. Einnig að veita börnum tækifæri til að ræða við jafnaldra sína á jákvæðan hátt um margt sem tengist því að eiga systkini með sérþarfir og veita þeim innsýn í það hvernig má takast á við þær margbreytilegu aðstæður sem því fylgja. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Systkinasmiðjunnar, www.verumsaman.is
Félagasamtök og stofnanir
Sjónarhóll
Sjónarhóll er ráðgjafarmiðstöð fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir um allt land. Þjónustan er endurgjaldslaus og óháð öðrum þjónustustofnunum. Leiðarljós Sjónarhóls er að veita foreldramiðaða ráðgjafarþjónustu með áherslu á styðjandi og jákvætt viðmót og virðingu þannig að þarfir fjölskyldunnar verði í brennidepli. Markmið Sjónarhóls er að veita foreldrum stuðning í hlutverki sínu.
Heimilisfang: Háaleitisbraut 11-13, 108 Rvk, s. 535 1900. www.sjonarholl.net
Landssamtökin Þroskahjálp
Voru stofnuð haustið 1976 í því skyni að sameina þau félög, sem vinna að málefnum fatlaðra, með það að markmiði að tryggja þeim fullt jafnrétti á við aðra þjóðfélagsþegna.
Aðildarfélög Þroskahjálpar eru 22 talsins og eru þau foreldra- og styrktarfélög, svo og fagfélög fólks sem hefur sérhæft sig í þjálfun og þjónustu við fatlaða. Félögin eru starfrækt
um allt land.
Heimilisfang: Háaleitisbraut 11-13, 108 Rvk, s. 588 9390. www.throskahjalp.is
Umhyggja
Félag til stuðnings langveikum börnum, stofnað 1980.
Regnhlífarsamtök foreldrafélaga langveikra barna, aðildarfélög eru 18 talsins. Einnig er í samtökunum fjöldi fagaðila innan heilbrigðiskerfisins og aðrir sem hafa áhuga á málefnum barna.
Heimilisfang: Háaleitisbraut 11-13, 108 Reykjavík, s. 552 4242. www.umhyggja.is

