Þroskaþjálfar athuga félagsleg samskipti og leik barnsins. Samskipti, tengsl við aðra og aðlögunarhæfni barnsins er athuguð. Þroskaþjálfar leggja einnig mat á færni til sjálfshjálpar, meðhöndlun hluta og úrlausn verkefna.
Meginundirstöðuþættir í vinnubrögðum þroskaþjálfa er hugmyndafræði snemmtækrar íhlutunar, skipulag og aðferðir. Í starfinu er lögð áhersla á samvinnu við foreldra.
Þroskaþjálfar veita foreldrum og þjálfunaraðilum ráðgjöf um þjálfun, uppeldi og umönnun barnsins og veita fræðslu um fötlunina og hvernig hún hefur áhrif á daglegt líf. Þroskaþjálfar kenna og veita ráðgjöf um markvissar aðferðir til að hafa áhrif á þroskaframvindu barna með þroskaraskanir.

