Talmeinafræðingar gera ítarlega athugun á málþroska barnsins. Með formlegum málþroskaprófum eru prófaðir eftirtaldir þættir: Málskilningur, þar sem athugaður er orðskilningur og hvernig barnið skilur málleg fyrirmæli og ýmis hugtök. Máltjáning, þar sem meðal annars er athugaður orðaforði, setningamyndun, málfræði- og hljóðkerfisþættir. Ennfremur málnotkun, þar sem kannað er hvernig barnið notar mál og tal í samskiptum við aðra. Í mati talmeinafræðings á málþroska felst einnig athugun á talfærum, almennri boðskiptafærni barnsins og óhefðbundnum tjáskiptaleiðum. Fyrir utan formleg málþroskapróf og matslista fer einnig fram athugun í frjálsum leik með barninu.
Þegar niðurstöður athugana liggja fyrir er gerð áætlun um áherslur í málörvun. Í samráði og samvinnu við foreldra og þjónustuaðila eru áhersluatriðum fléttað inn í leik og daglegar athafnir barnsins. Eftirfylgd er metin eftir þörf hverju sinni og umfangið fer eftir hversu sértæk hún þarf að vera.

