Sjúkraþjálfarar meta hreyfingar, hreyfiþroska og frávik frá eðlilegum hreyfiþroska. Til að greina mismunandi hreyfifrávik eru auk klíniskrar athugunar notuð ýmis viðurkennd próftæki sem sjúkraþjálfarar hafa sérþekkingu á.
Á grundvelli greiningar veita sjúkraþjálfarar börnum og umönnunaraðilum ráðgjöf um skyn- og hreyfiörvun og þætti sem stuðla að sem bestri hreyfifærni í daglegu lífi. Þeir aðstoða barn og fjölskyldu þess við að afla hjálpartækja sem henta barninu hverju sinni og aðlaga umhverfi þess til að bæta færni. Sjúkraþjálfarar veita börnum með frávik í hreyfifærni eftirfylgd, sérstaklega þegar um sérhæfð vandamál er að ræða (s.s. tauga- og vöðvasjúkdóma). Í einstaka tilfellum sinna þeir meðferð barna með sérhæfð vandamál.
Í mörgum tilfellum starfa sjúkraþjálfarar á Greiningarstöð í nánu samstarfi við sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og aðra fagaðila í heimabyggð barnsins. Einnig eiga þeir mikið samstarf við stoðtækjafræðinga og starfsfólk Hjálpartækjamiðstöðvar SÍ við að útvega þau hjálpartæki sem börnin þarfnast.

