Sérkennari gerir athugun á þroska og hegðun barna auk þess að athuga félagsleg samskipti og leik. Snemmtæk íhlutun er veigamikill þáttur í starfi leikskólasérkennarans og fer sú íhlutun fram á heimili barnsins og á Greiningarstöð eða þar til barnið byrjar í leikskóla.
Sérkennari veitir ráðgjöf og eftirfylgd til foreldra og starfsfólks leikskóla/grunnskóla, um sérkennslu, skipulagningu á kennsluumhverfi og fylgir greiningu eftir ef þurfa þykir. Ráðleggur starfsmönnum leikskóla/grunnskóla um gerð verkefna og einstaklingsáætlana fyrir hvert barn með hliðsjón af greiningu á fötlun þess í samvinnu við aðra er að málinu koma. Leiðbeinir starfsmönnum með reglulegum heimsóknum (vinnufundum) í leikskólann/grunnskóla.

