Sálfræðingar gera athuganir á þroska og hegðun barna, veita ráðgjöf til foreldra og fagfólks og taka þátt í uppbyggingu íhlutunar, fræðslu og rannsókna.
Athugun sálfræðinga á þeim börnum, sem vísað er til athugunar á Greiningarstöð er fjölþætt þar sem stuðst er við margvíslegar athugunaraðferðir, próftæki og sérfræðiþekkingu á börnum með ýmsar tegundir fatlana. Vitsmunaþroski barna er metinn með stöðluðum prófum, sem taka mið af aldri og við athugun á félagsþroska og við athuganir á hegðun er stuðst við spurningalista af ýmsu tagi. Auk þess skiptir sérfræðiþekking á erfiðleikum barnanna miklu máli þegar athuganir og prófanir eru gerðar.
Ráðgjöf til foreldra og fagfólks er mikilvægur þáttur í starfi sálfræðinga á Greiningarstöð. Í framhaldi af athugun er afar mikilvægt að niðurstöðu greiningar leiði til aukins skilnings á erfiðleikum barnsins og íhlutunar/meðferðar, sem dregur úr áhrifum fötlunar á líf þess. Þáttur sálfræðinga í ráðgjöf og íhlutun getur falist í beinni ráðgjöf til foreldra og fagfólks vegna erfiðrar hegðunar hjá barni, uppeldisrágjöf til foreldra og þátttöku í skipulagningu snemmtækrar íhlutunar.

