Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Barnalæknar og læknar

Læknar gegna oft mikilvægu hlutverki við frumgreiningu vandans, áður en til tilvísunar á Greiningarstöð kemur, innan sjúkrahúss eða utan. Hann metur hvaða orsakarannsóknir eru nauðsynlegar hjá hverju barni út frá þroskasögu og skoðun.

Læknar meta þörf fyrir meðferð og þjálfun, í samvinnu við aðra sérfræðinga teymisins. Börn með marktæk þroskafrávik eru oft með útbreidda röskun á starfsemi miðtaugakerfisins.  Þannig koma oft fram frávik í fín- og grófhreyfingum, málþroska og hegðun, auk þess sem rekja má til meginfötlunar. Með taugaskoðun og taugaþroskamati leggur læknirinn mat á röskun og færni barnsins og sér um að vísa barninu í viðeigandi þjálfun að lokinni greiningu, t.d. iðju-, sjúkra- og talþjálfun, allt eftir þörfum hvers barns á hverjum tíma. Taugaskoðunin getur einnig vakið grunsemdir um skerta sjón eða heyrn, en slík vandamál sjást í auknum mæli hjá þroskahömluðum börnum.  Læknar taka þátt í að meta hegðun og atferli og þörf fyrir meðferð, t.d lyfjameðferð.

Læknar greina ýmsa líkamlega kvilla, meðhöndla þá eða vísar til annarra sérfræðinga eftir því sem við á. Bæði getur verið um að ræða sjúkdóma sem herja jafnt á öll börn, svo sem ýmsa barnasjúkdóma og umgangspestir, eða önnur líkamleg vandamál og meðfædda galla sem sjást í aukinni tíðni hjá börnum með meðfæddar fatlanir.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica