Iðjuþjálfar meta færni barnsins við iðju. Hér er átt við frammistöðu og þátttöku í því sem barnið vill og þarf að gera í daglegu lífi og umhverfið þar sem það stundar tiltekna iðju. Verk og athafnir á heimili, í skóla, við leik og tómstundaiðju eru í brennidepli. Ýmislegt í umhverfi barnsins er kannað og metið hvað ýtir undir eða torveldar þátttöku og virkni. Undirliggjandi þroskaþættir eru athugaðir s.s. skynjun og hreyfingar, handbeiting og verkgeta. Til þess að afla upplýsinga um ofangreinda þætti eru notuð viðurkennd matstæki, s.s. þroskapróf, færnipróf og matslistar.
Ráðgjöf og eftirfylgd iðjuþjálfa er mismikil eftir eðli fötlunar og aðstæðum, eða hversu margþætt þörfin er. Áhersla er lögð á að efla færni barnsins í því umhverfi sem það býr. Ráðgjöf getur falist í leiðbeiningum um athafnir og leiki sem örva þroska, breytingum og aðlögun á umhverfi og viðfangsefnum t.d. að bæta aðgengi og skipulag við framkvæmd athafna. Ennfremur sérhæfðum tækniúrræðum, hjálpar- og stoðtækjum auk ráðgjafar og leiðbeininga um notkun. Eftirfylgd felur oft í sér heimsóknir í skóla og á heimili til að kanna færni barnsins og benda á hugsanlegar leiðir til lausna.

