Félagsráðgjafar hitta foreldra í viðtali og fá upplýsingar um aðstæður og líðan hjá fjölskyldu. Horft er á aðstæður fjölskyldunnar í heild sinni og gerðar áætlanir í samvinnu við foreldra sem miða að því að leita heppilegra stuðningsúrræða.
Félagsráðgjafar veita fjölskyldunni upplýsingar og leiðsögn um félagsleg úrræði hjá sveitarfélögum, ríki, einkaaðilum og félagasamtökum og aðstoða við að leita eftir þjónustu og stuðningi.
Samstarf félagsráðgjafa við fjölskyldur fer fram í viðtölum, heimsóknum, símtölum, teymisfundum, fundum með þjónustuaðilum, fjölskyldufundum og bréfaskriftum. Ennfremur eru félagsráðgjafar í samstarfi við aðila úr öðrum þjónustukerfum.
Dæmi um stuðningsúrræði sem félagsráðgjafar leiðbeina fjölskyldu um eru umönnunargreiðslur, stuðningsfjölskyldur, liðveisla, forgangsbeiðni á leikskóla, stuðningsviðtöl, úrræði fyrir systkini o.fl.

