Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Atferlisfræðingar

Atferlisfræðingar koma að vinnu með börnum til þess að auka færni þeirra og einnig ef vinna þarf með óæskilega hegðun.

Aðkoma atferlisfræðinga er metin eftir þörfum hvers barns. Atferlisfræðingar koma að vinnu með þeim börnum sem sýna litlar framfarir í íhlutun á leikskólum. Þá metur atferlisfræðingur færni barnsins, greinir námsvandann og leggur upp leiðir með starfsfólki og foreldrum að því markmiði að barnið nái betri árangri.

Í vinnu með börnum sem hafa þróað óæskilega hegðun, miðar vinna atferlisfræðings að því að skilgreina og greina vandann. Greining byggir alltaf á viðtali við foreldra og stundum við starfsfólk sem vinnur með barninu, auk beinnar athugunar á hegðun barnsins í daglegu umhverfi þess. Í framhaldi af því er annað hvort gert kerfisbundið mat á óæskilegu hegðuninni eða sett af stað skráning í þeim tilgangi að greina mikilvæga umhverfisþætti sem gagnast við þróun meðferðaráætlunar.

Í kjölfar greiningarvinnu þróar atferlisfræðingur í samvinnu við foreldra og starfsfólk meðferðaráætlun. Atferlisfræðingur fylgir svo áætluninni eftir til að ganga úr skugga um að hún beri árangur.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica