Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Fagstéttir á Greiningarstöð

24.11.2008

Á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins starfa sérfræðingar úr flestum fagstéttum sem koma að þroskaröskunum barna og metur hver þeirra með viðurkenndum aðferðum þá þætti sem hann hefur sérþekkingu á. Misjafnt er hversu margar eða hvaða fagstéttir koma að greiningu og ráðgjöf hverju sinni, og einnig hvort hún fer fram með athugun á barninu í heimsóknum á Greiningarstöðina, í umhverfi barnsins, eða hvorttveggja. Fer það m.a. eftir aldri barnsins og aðstæðum, eða tegund þroskaröskunarinnar. Samstarf við fjölskyldu og fagfólk utan stofnunar er alltaf hluti af greiningunni.

Auk  þátttöku í þjónustu við börnin og fjölskyldur þeirra, taka sérfræðingar stofnunarinnar þátt í  rannsóknum og fræðslustarfi.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica