Starfsreglur um frumgreiningu vegna þroskahömlunar
Frumgreining vegna gruns um þroskahömlun byggist á skilgreiningum á greiningarviðmiðum þroskahömlunar samkvæmt ICD-10
Eftirfarandi atriði þarf að hafa til hliðsjónar þegar staðið er að frumgreiningu þroskahömlunar hjá börnum:
- Lýsing á þroska- og heilsufarssögu barns, þ.m.t. sjón og heyrn.
- Lýsing á fjölskylduaðstæðum,þar sem fram koma upplýsingar um tví/margtyngi, systkini, heilsufar, aðstæður foreldra og samskipti við félagsmálayfirvöld ef við á, og fjölskyldusaga barns m.t.t. alvarlegra þroskaraskana og þroskahömlunar.
- Lýsing á félagslegri þátttöku og aðlögun.
- Lýsing á námsstöðu þegar um barn á grunnskólaaldri er að ræða.
- Mat á vitsmunaþroska með viðurkenndu þroskaprófi.
Fyrir börn á aldrinum 0-3 ára er stuðst við Smábarnalistann og niðurstöður þroskaprófs Bayley (BSID-III). Fyrir börn á aldrinum 3-6 ára er stuðst við greindarpróf Wechslers (WPPSI-Rís) og fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-16 ára er stuðst við greindarpróf Wechslers (WISC-IVís). Mikilvægt er að með tilvísun fylgi niðurstöður annarra athuguna sem kunna að liggja fyrir t.d. athugana talmeinafræðings, sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa og niðurstöður taugasálfræðilegra prófana, sem varpað geta ljósi á afmarkaða færni og þroskaþætti hjá barni. - Mat á hegðun, líðan og félagslegum samskiptum.
Afla þarf upplýsinga um hegðun og líðan frá foreldrum, kennurum og öðrum umönnunaraðilum með spurninga- og matslistum (SDQ, CBCL/TRF, ADHD) og meta hvort til staðar séu einkenni á einhverfurófi (t.d. CARS, SCQ, ASSQ).
Alþjóðlega viðurkenndar skilgreiningar á þroskahömlun byggja annars vegar á mati á vitsmunaþroska og hins vegar á mati á aðlögun. Klíniskt mat á þroska og færni barns er einnig mikilvægt við greiningu á þroskahömlun og er í raun þriðja helsta stoðin, sem greiningin hvílir á.

