Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Starfsreglur um frumgreiningu vegna sjónskerðingar

Í gildi er samstarfssamningur milli Sjónstöðvar Íslands og Greiningarstöðvar. Þar kemur fram að skjólstæðingar Hreyfi- og skynhömlunarsviðs Greiningarstöðvar eru öll blind börn og auk þess sjónskert börn með viðbótarfatlanir.

Eftirfarandi atriði þurfa því að liggja til grundvallar við frumgreiningu á barni með sjónskerðingu eða blindu.

  1. Lýsing á niðurstöðum sjónskoðunar. Lýsing á sjónnýtingu og almennri færni.
  2. Lýsing á heilsufars- og þroskasögu barns, niðurstöður almennrar læknisskoðunar, taugaskoðunar og/eða taugaþroskamats.
  3. Nánari upplýsingar frá Sjónstöð t.d. frá sjónráðgjafa, umferliskennara eða blindrakennara, þegar við á.
  4. Sérstök lýsing á málþroska, hreyfifærni og félagsþroska ef grunur leikur á að barn sé með viðbótarfötlun.
  5. Upplýsingar frá sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa eða talmeinafræðingi ef barn er í þjálfun.
  6. Lýsing á fjölskylduaðstæðum þar sem fram koma upplýsingar um systkini, heilsufar og aðstæður foreldra.
  7. Lýsing á námsstöðu, sérúrræðum í námi og félagsfærni þegar um barn á grunnskólaaldri er að ræða.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica