Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Starfsreglur um frumgreiningu hreyfihamlana og sjónskerðingar

8.6.2009

Frumgreining og greining á hreyfihömlun og sjónskerðingu byggir fyrst og fremst á þroskasögu, klíniskri skoðun, niðurstöðum úr læknisfræðilegum rannsóknum og öðrum sérhæfðum athugunum.

Eftirfarandi atriði þarf að hafa til hliðsjónar við frumgreiningu á barni með hreyfihömlun.

  1. Lýsing á heilsufars- og þroskasögu barns, niðurstöður almennrar læknisskoðunar, taugaskoðunar og/eða taukaþroskamats. Sérstök lýsing á hreyfifærni og hjálpartækjum, þegar við á.
  2. Niðurstöður úr læknisfræðilegum rannsóknum þar með töldum heilaskönnum.
  3. Upplýsingar frá sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa eða talmeinafræðingi ef barn er í þjálfun.
  4. Lýsing á fjölskylduaðstæðum þar sem fram koma upplýsingar um systkini, heilsufar og aðstæður foreldra.
  5. Lýsing á námsstöðu, sérúrræðum í námi og félagsfærni þegar um barn á grunnskólaaldri er að ræða.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica