Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Styrktarsjóður

27.3.2009

Styrktarsjóður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins var stofnaður 8. júní 1995 til minningar um Þorstein Helga Ásgeirsson, en þann dag hefði Þorsteinn Helgi orðið 5 ára gamall. Hann lést 20. janúar 1995.

Frumkvöðlar að stofnun sjóðsins voru móðurbræður Þorsteins Helga, þeir Gunnar, Sveinn og Guðmundur Hanssynir, en foreldrar hans, Magnea Hansdóttir og Ásgeir Þorsteinsson, lögðu sjóðnum einnig til stofnfé. Sjóðurinn aflar fjár með sölu samúðarkorta.

Markmið styrktarsjóðsins er að stuðla að aukinni þekkingu á þroskaröskunum og fötlunum barna með því að styrkja fagfólk til framhaldsmenntunar og rannsóknarstarfa. Veitt er árlega úr sjóðnum á fæðingardegi Þorsteins Helga, þann 8. júní. Hefur starfsfólk Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins að jafnaði forgang að styrkjum úr sjóðnum.

Til að panta samúðarkort, vinsamlegast fyllið út formið hér fyrir neðan.

Nánari upplýsingar: Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins í síma 510 8400


Viðtakandi samúðarkorts:


Greiðandi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica