Ingibjörg er sviðsstjóri inntöku- og samræmingarsviðs. Hún starfar einnig sem barnalæknir á fagsviði einhverfu.
Menntun Fékk sérfræðileyfi á Íslandi í alm. barnalækningum í jan 1988 og í nýburalækningum í júlí 1989. Sérnám í barnalækningum og nýburalækningum fór fram 1980-82 á Barnaspítala Hringsins, 1982-85 við University of Manitoba og Barnaspítalann í Winnipeg, 1986-87 á Kvennadeild og Barna- og unglingageðdeild Landspítalans og 1988 við University of British Columbia og Barnaspítalann í Vancouver. Aðstoðarlæknir á sjúkrahúsum í Reykjavík 1978-1980 og fékk almennt lækningaleyfi á Íslandi vorið 1980. Nám við Læknadeild Háskóla Íslands 1972-78.
Helstu störf Sviðsstjóri inntöku- og samræmingarsviðs frá jan 2007. Barnalæknir á fagsviði einhverfu og málhamlana á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins frá 2005. Barnalæknir hjá Tryggingastofnun ríkisins og hefur umsjón með málefnum fatlaðra og langveikra frá 1995. Unnið að rannsókn á langtíma heilsufari og þroska lítilla fyrirbura frá 1996. Barnalæknir á Greiningar- og ráðgjafarstöð 1988-1995 og á eigin stofu 1989-1998. Ingibjörg hefur ritað nokkrar greinar með öðrum í innlend og erlend tímarit.