Margrét er barna-og unglingageðlæknir og starfar á fagsviði þroskahamlana. Helstu störf hennar felast í greiningum á þeim börnum og unglingum sem vísað er á Greiningarstöð, upplýsingagjöf til foreldra og og ráðgjöf til fagaðila.
Menntun
Kandídatspróf í læknisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands 1996.
Sérfræðiréttindi í barna- og unglingageðlækningum 2005.
Kennsluréttindanám frá Kennaraháskóla Íslands árið 2006.
Helstu störf
Barna-og unglingageðlæknir á Greiningar- og ráðgjafarstöð frá júní 2007.
Áður starfaði hún á barna- og unglingageðdeild á Landspítala – háskólasjúkrahúsi, BUGL.
Margrét hefur ritað nokkrar greinar í innlend og erlend tímarit.
Starfar að hluta sem stundakennari við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.