Helga er félagsráðgjafi og starfar á fagsviði Þroskahömlunar. Helstu störf hennar eru samskipti við foreldra og fagfólk vegna barna sem koma til athugaunar á sviðinu. Helga tekur þátt í þverfaglegri greiningu á börnum og unglingum, sem og stuðningi, ráðgjöf og eftirfylgd varðandi þjónustuúrræði fyrir fjölskylduna. Helga tekur þátt í fræðslustarfi Greiningarstöðvar og hefur m.a. fjallað um þroskahömlun í grunnskólum.
Menntun
B.S. próf í félagsráðgjöf frá Álaborgarháskóla 1990.
Helstu störf
Félagsráðgjafi Greiningar og ráðgjafarstöð ríkisins 2008.
Félagsráðgjafi á Landspítala Háskólasjúkrahús krabbameinsdeildum 2003 -2008.
Félagsráðgjafi hjá Félagsþjónustu Kópavogsbæjar málefni fatlaðra 1997-2003.
Félagsráðgjafi hjá Félagsþjónustu Reykjavíkur á hverfaskrifstofu í Mjódd og í málefnum fatlaðra 1994-1997.
Félagsráðgjafi á Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á austurlandi 1991-1994.