Solveig er sviðsstjóri fagsviðs hreyfi- og skynhamlana. Hún er barnalæknir og sérfræðingur í fötlunum barna.
Menntun
Doktorspróf frá læknadeild NTNU (Norges teknisk-naturvitenskapelige universitet) í Þrándheimi í Noregi 2011. Heiti doktorsritgerðarinnar er, „Clinical aspects of cerebral palsy in Iceland. A population-based study of preschool children.“
Amerísk sérfræðipróf í almennum barnalækningum 1996 og í fötlunum barna sem undirsérgrein 2001.
Sérfræðiviðurkenning á Íslandi í barnalækningum og fötlunum barna 1999.
Framhaldsnám í fötlunum barna við Johns Hopkins háskólann í Baltimore, Maryland í Bandaríkjunum 1996-1999.
Nám í barnalækningum við Case Western Reserve háskólann í Cleveland, Ohio í Bandaríkjunum 1993-1996.
Kandidatspróf frá Læknadeild Háskóla Íslands 1988.
Helstu störf
Sérfræðingur við Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins frá 1999 og sviðsstjóri við sömu stofnun frá 2002.
Sjálfstætt starfandi barnalæknir á stofu frá 1999.
Stundakennari við Heilbrigðis- og Menntavísindasvið Háskóla Íslands.