Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Starfsfólk á fagsviði einhverfu

 Einhverfusvid_small


Starfsfólk á fagsviði einhverfu

SigridurLoa

Sigríður Lóa Jónsdóttir

  • Starfsheiti: sálfræðingur
  • Netfang: sigridurloa ( @ ) greining . is

Sigríður Lóa er sérfræðingur í fötlunum barna og starfar á fagsviði einhverfu. Hún tekur þátt í þverfaglegu starfi sem felst í greiningu á hegðun og þroska barna og hefur með höndum fræðslu, ráðgjöf og eftirfylgd til foreldra og fagaðila vegna þjálfunar og kennslu barna með röskun á einhverfurófi, en hún hefur sérhæft sig í atferlisþjálfun. Sigríður Lóa tekur þátt í námskeiðahaldi stofnunarinnar og rannsóknum sem tengjast skjólstæðingum hennar. Hún er formaður rannsóknarnefndar Greiningarstöðvar.

Menntun
Framhaldsnám í hagnýtri atferlisgreiningu við University of California, Los Angeles 1993-94.
Cand.Psych., embættispróf í sálfræði frá Århus Universitet 1980.
B.A. próf í sálfræði frá Háskóla Íslands 1977.
Sérhæfð námskeið um stjórnun (Stjórnunarfélag Íslands), fjölskyldumeðferð (Institut für Paar- und Familienterapie 1982-1985), áfallahjálp, svo og greiningu og meðferð einhverfu.
Löggilding sem sálfræðingur hér á landi 1980 skv. lögum um sálfræðinga (nr. 40/1976).
Sérfræðiviðurkenning á sviði fötlunar 1995 skv. lögum (68/1988) og reglugerð um sérfræðileyfi sálfræðinga (158/1990).

Helstu störf
Sálfræðingur á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins frá 1995.
Stundakennsla við Þroskaþjálfaskóla Íslands og síðar Kennaraháskóla Íslands og Menntavísindasvið Háskóla Íslands frá 1981.
Kennsla á framhaldsnámskeiðum fyrir stuðningsfulltrúa á vegum SFR frá 1996 og síðan á vegum Framvegis, miðstöðvar um símenntun, frá 2002.
Sérfræðingur í áfallateymi Rauða kross Íslands frá 2000.
Ráðgjöf vegna atferlismeðferðar barna með einhverfu í Ísrael 2001-2003.
Þátttaka í fjölþjóðlegum rannsóknarhópi vegna rannsóknar á áhrifum atferlismeðferðar á ung börn með einhverfu frá 1994.
Ráðgjöf og námskeið fyrir ýmsar stofnanir fyrir fatlaða.
Forstöðumaður meðferðarheimilia,sambýla og vinnustofu einhverfra 1982-1995.
Sálfræðingur á Kópavogshæli 1980-1982.
 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica