Guðrún starfar sem félagsráðgjafi á fagsviði einhverfu. Helstu störf hennar felast í samskiptum við foreldra og fagfólk vegna barna sem koma í athugun á sviðinu. Þar með talið er þátttaka í þverfaglegri greiningu á börnum og unglingum, sem og stuðningur, ráðgjöf og eftirfylgd varðandi þjónustuúrræði fyrir fjölskylduna í heild sinni. Guðrún tekur þátt í fræðslustarfi á Greiningarstöð, á grunnnámskeið um einhverfu og á foreldranámskeiðum.
Menntun
MA próf í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands 2010.
Starfsréttindanám (30 e.) í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands 1995.
BA próf í félagsfræði og félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands 1995.
Þjálfunarnámskeið um matstækið Autism Diagnostic Interview Revised (ADI-R) 2006.
Fjölmörg námskeið og ráðstefnur um einhverfu, málefni barna með sérþarfir og fjölskyldna þeirra.
Helstu störf
Stundakennsla við HÍ, félagsráðgjafardeild frá árinu 2008.
Félagsráðgjafi á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins frá árinu 2000.
Rannsóknastörf í samvinnu við HÍ 1997 og 1999.
Félagsráðgjafi hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík 1996-2000.