Starfsfólk Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins.
Starfsfólk
Sigrún Grendal Magnúsdóttir
Starfsheiti:talmeinafræðingur
Netfang:sigrungr ( @ ) greining . is
Sigrún starfar á fagsviði hreyfi- og skynhamlana. Helstu störf hennar felast í greiningu á málþroska barna og unglinga. Auk þess sinnir Sigrún ráðgjöf og fræðslu til foreldra og þjónustuaðila sem og eftirfylgd vegna leik- og grunnskólabarna ásamt eldri einstaklinga sem nota óhefðbundnar tjáskiptaleiðir. Sigrún hefur sérhæft sig í óhefðbundnum tjáskiptaleiðum og sinnir sérstaklega fræðslu, ráðgjöf og eftirfylgd á því sviði.
Menntun
Próf í talmeinafræði frá Statens Spesiallærerhöjskole Noregi 1978.
Próf frá Fósturskóla Íslands 1975.
Ýmis námskeið um Blisstáknmál hérlendis og erlendis.
Helstu störf
Talmeinafræðingur við Athugunar- og greiningardeildina Kjarvalshúsi, síðar Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, frá 1978.
Stundakennari við Kennaraháskóla Íslands, leikskólaskor frá 2000.
Stundakennari við Þroskaþjálfaskóla Íslands frá 1992, síðar Þroskaþjálfaskor KHÍ.
Ráðgjöf við ýmsar stofnanir.
Talmeinafræðingur á eigin stofu frá 1978.
Talmeinafræðingur við leikskóla í Kópavogi.
Uppeldisfulltrúi við Heyrnleysingjaskólann 1972 – 1973.
Forstöðumaður leikskóla í Hafnarfirði 1975 -1976.
Sigrún hefur starfað í Íslensku Blissnefndinni frá stofnun hennar 1980, sem einnig er aðili að Norrænu Blissnefndinni (N.B.K.) Hún er einnig aðili að alþjóðlegu Blisssamtökunum (B.C.I.) og fulltrúi þeirra sem eftirlitsaðili um rétta notkun á Blisstáknmáls á Íslandi.
Aðili að alþjóðlegu Blisssamtökunum (B.C.I.) og fulltrúi þeirra sem eftirlitsaðili um rétta notkun á Blisstáknum á Íslandi.