Starfsfólk Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins.
Starfsfólk
Guðný Stefánsdóttir
Starfsheiti:sviðsstjóri / ráðgjafi í atferlisþjálfun
Netfang:gudny ( @ ) greining . is
Guðný er sviðsstjóri á fræðslu- og mannauðssviði. Hún starfar einnig að sérverkefni um mat á stuðningsþörf (Support Intensity Scale) sem er samstarfsverkefni Greiningarstöðvar, Háskóla Íslands, Velferðarráðuneytis og Innanríkisráðuneytis.
Menntun
M.A. í menntunarfræði við Háskóla Íslands 2008.
Dipl.Ed. í uppeldis og menntunarfræðum við framhaldsdeild Kennaraháskóla Íslands 2003.
Meðferðar- og ráðgjafarréttindi í Aggression Replacement Training (ART) 2005.
Námskeið fyrir leiðbeinendur í myndræna boðskiptakerfinu PECS 2003-2006.
Nám í meðferðarráðgjöf vegna atferlismeðferðar barna með einhverfu m.a. við Glenne Senter í Noregi 1998 og 1999.
Framhaldsnám í stjórnun og starfsmannahaldi 1989-1991 við Þroskaþjálfaskóla Íslands.
Þroskaþjálfi frá Þroskaþjálfaskóla Íslands 1986.
Helstu störf
Guðný hefur starfað hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins frá árinu 1986 við hin ýmsu verkefni. Hún var deildarþroskaþjálfi, yfirþroskaþjálfi og svo deildarstjóri á dagdeild stofnunarinnar til ársins 1997. Þá hóf hún störf við greiningu og ráðgjöf í atferlisþjálfun á fagsviði einhverfu ásamt fræðslustarfi á vegum sviðsins.
Árið 2010 tók hún að sér verkstjórn sérverkefnis um mat á stuðningsþörf fatlaðra (SIS) og síðan 2011 hefur hún einnig starfað sem sviðsstjóri fræðslu- og mannauðssviðs.
Þessu til viðbótar hefur hún starfað sem þroskaþjálfi og forstöðumaður í afleysingu hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík 1993-1995, yfirþroskaþjálfi á Endurhæfingar- og hæfingardeild Lsp. í Kópavogi í hlutastarfi 1994-1995, stundakennari við Þroskaþjálfaskóla Íslands og sjálfstætt starfandi ráðgjafi hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur og fleiri stofnunum.