Starfsfólk Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins.
Starfsfólk
Kristjana Ólafsdóttir
Starfsheiti:iðjuþjálfi
Netfang:kristjanaolafs ( @ ) greining . is
Kristjana starfar sem iðjuþjálfi á Þroskahömlunarsviði. Helstu störf hennar felast í mati á færni barna við þau daglegu viðfangsefni sem börn vilja og þurfa að leysa af hendi er varða eigin umsjá, nám og leik og tómstundaiðju. Einnig að meta þætti í umhverfi sem hafa áhrif á færni og þátttöku barna. Auk þess felur starf hennar í sér ráðgjöf og eftirfylgd barna með þroskahömlun ásamt samstarfi við foreldra og fagmenn annarra þjónustustofnana.
Menntun
Útskrifaðist sem iðjuþjálfi frá Hälsovårdshögskolan Umeå Svíþjóð, 1989 og lauk sérskipulögðu fjarnámi til BSc gráðu í iðjuþjálfunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri, 2005.
Helstu störf
Iðjuþjálfi í afleysingu á Greiningarstöð frá janúar til júni 2012.
Iðjuþjálfi í aðkeyptri þjónustu við leikskóla Kópavogs frá 1997 til dagsins í dag.
Iðjuþjálfi í aðkeyptri þjónustu við grunnskóla Kópavogs 2000-2011.
Iðjuþjálfi á æfingastöð Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Vinna með fjölbreyttum hópi skjólstæðinga með áherslu á þjálfun barna. Töluverð ráðgjöf fer jafnframt fram til foreldra og skóla. 1989-2000.
Iðjuþjálfi við sérdeild hreyfihamlaðra við Hlíðaskóla, 1989-1991.
Starfsmaður fræðsluskristofu Kópavogsbæjar í verkefni sem Kópavogsbær er með í að bæta þjónustu við börn með ADHD á leikskólum og grunnskólum Kópavogs 2010-2013.