Berglind starfar á fagsviði einhverfu. Hún tekur þátt í þverfaglegri athugun barna sem koma á sviðið auk þess sem hún veitir ráðgjöf, stuðning og eftirfylgd varðandi þjónustuúrræði. Berglind metur þörf fjölskyldunnar fyrir stuðning í samráði við foreldra og er í samstarfi við annað fagfólk eftir því sem við á.
Menntun:
BS próf í félagsráðgjöf frá Háskólanum í Gautaborg 1993. Helstu störf
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins frá október 2007, Fannborgarteymi – átaksverkefni.
Félagsráðgjafi hjá Landspítala Háskólasjúkrahúsi 2001 – 2007.
Félagsráðgjafi hjá Félagsþjónustu Kópavogs 1998 – 2001.
Námsráðgjöf Háskóla Íslands 1998.
Félagsráðgjafi hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkur 1993 – 1997.