Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Stoðsvið

26.3.2009

Stoðsvið

Inntöku- og samræmingarsvið

Tilvísanir, gagnavarsla og ritaraþjónusta.
Hér fer fram móttaka tilvísana og úrvinnsla þeirra, skráning og tilvísun inn á viðeigandi fötlunarsvið. Ennfremur samræming og umsjón gagna, þar með talið læknaritun, skjalavarsla, móttaka og símvarsla. Einnig færslur og umsjón með gögnum, sem varða stofnunina í heild.

Sviðsstjóri er Ingibjörg Georgsdóttir barnalæknir
Móttökuritarar eru Vigdís Viðarsdóttir og Hafdís Hannesdóttir
Læknaritarar eru Sólrún Steindórsdóttir og Berglind Borgarsdóttir

 

Fræðslu- og mannauðssvið.

Á fræðslu- og mannauðssviði fer fram starfsþróun, fræðsla, upplýsingamiðlun og kynningarmál. Umsjón námskeiðahalds á vegum stofnunarinnar fer fram á fræðslu- og mannauðssviði. Sjá meira um fræðslustarf á Greiningarstöð

Sviðsstjóri er Bryndís Halldórsdóttir þroskaþjálfi.
Fulltrúi á fræðslu- og mannauðsviði er Anna Lísa Þorbergsdóttir kennari.

 

Rekstrarsvið.

Rekstur og starfsmannahald. Rekstrarstjóri stofnunarinnar hefur með höndum fjárreiður stofnunarinnar, innkaup og reikningshald, gerð fjárlagatillagna og aðra þætti er lúta að daglegum rekstri. Hann hefur yfirumsjón með starfsmannahaldi og samskiptum við fjársýslu og starfsmannaskrifstofu ríkisins.

Rekstrarstjóri er Heimir Bjarnason viðskiptafræðingur.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica