Unglingateymi
Á Greiningar- og ráðgjafarstöð er starfandi teymi sem sinnir ráðgjöf og greiningu vegna unglinga á aldrinum 13-18 ára. Unglingateymið var sett á laggirnar um mitt ár 2010 og er tímabundið verkefni til eins árs en þá verður árangur af því metinn. Markmiðið er að bæta þjónustu við unglinga og fjölskyldur þeirra með því að endurskoða vinnulag og þróa enn frekar þekkingu á þörfum þessa aldurshóps. Áætlaður fjöldi tilvísana á Greiningarstöð vegna unglinga er 50-75 á ári og þær berast til teymisins frá fagsviðum stofnunarinnar. Í flestum tilvikum er um að ræða skjólstæðinga sem vísað er á Greiningarstöð á unglingsárum og geta nýtt sér afmarkaða ráðgjöf og eftirfylgd.
Leiðarljós og áherslur:
- Þróa þjónustuferli og skipulag sem mætir þörfum unglinga og fjölskyldum þeirra.
- Meta færni og þátttöku unglinga í ólíkum aðstæðum daglegs lífs. Kanna styrk- og veikleika í þroskamynstri, einkenni einhverfu, félagslega aðlögun, hegðun og líðan.
- Stuðla að þjónustu- og stuðningsúrræðum við hæfi með markvissu samstarfi og upplýsingamiðlun til nærumhverfisins.
- Byggja upp þekkingu, þróa fræðslu og rannsóknir.
Fastir starfsmenn:
Helga Arnfríður Haraldsdóttir sálfræðingur, Sigurlaug Vilbergsdóttir þroskaþjálfi, Elín Konráðsdóttir félagsráðgjafi, Laufey I. Gunnarsdóttir þroskaþjálfi og einhverfuráðgjafi, og Þóra Leósdóttir iðjuþjálfi og teymisstjóri.

