Átaksverkefni
til að stytta biðtíma barna eftir greiningu og ráðgjöf vegna þroskaraskana.
Í júlí 2007 hlaut Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins sérstaka fjárveitingu að upphæð 147 milljónir sem varið skyldi í átaksverkefni svo vinna mætti á biðlistum stofnunarinnar. Þetta var liður í aðgerðaáætlun þáverandi ríkisstjórnar til að bæta aðstæður barna og fjölskyldna hér á landi. Um haustið voru sérfræðingar ráðnir og stofnað sérstakt teymi á Greiningarstöð (Fannborgarteymi) til að vinna í átaksverkefninu. Fjölmargir aðrir starfsmenn komu beint og óbeint að verkefninu sem auk þess hafði traust bakland í stjórnendahópi. Verkefninu lauk í árslok 2009.
Á meðan á verkefninu stóð styttist biðtími skjólstæðinga í þessum aldurshópi verulega eða úr þremur og hálfu ári í tæplega eitt og hálft ár að jafnaði. Á sama tímabili þ.e. 2007-2009 fjölgaði tilvísunum á Greiningarstöð úr 280 í 383. Ljóst er því að stofnunin stendur eftir sem áður frammi fyrir margvíslegum áskorunum sem hún þarf að takast á við í samstarfi við aðrar stofnanir og þjónustuaðila. Mikið er í húfi þar eð langur biðtími eftir ráðgjöf og greiningu vegna þroskaraskana eykur á vanda barns og hefur alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir viðkomandi fjölskyldur og samfélag.
Skýrslu um verkefnið má finna hér
Verkefnisstjóri var Þóra Leósdóttir iðjuþjálfi, en auk hennar störfuðu í teyminu þær Elísabet Þórðardóttir sálfræðingur, Sigurlaug Vilbergsdóttir þroskaþjálfi, Helga kristín Gestsdóttir iðjuþjálfi, Kristjana Magnúsdóttir sálfræðingur, Berglind Hrönn Hrafnsdóttir félagsráðgjafi og Ásta Sigurbjörnsdóttir talmeinafræðingur.
Starfsfólk í átaksverkefni 2007-2009: Á myndina vantar Ástu Sigurbjörnsdóttur

