Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Laus störf

15.2.2010

Móttökuritari óskast á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins

Starfssvið

  • Umsjón með móttöku og símsvörun á skiptiborði stofnunarinnar.
  • Almenn ritarastörf og skjalavarsla.
  • Ýmis önnur verkefni í samráði við yfirmann.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Góð almenn menntun og góð tölvukunnátta.
  • Mjög góð samskiptahæfni, þjónustulund og jákvætt viðmót.
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og skipulega.
  • Reynsla af móttöku- og ritarastörfum eða sambærilegu starfi er æskileg.

Um er að ræða 75% starfshlutfall.  Laun greiðast skv. kjarasamningi SFR við ríkissjóð.

Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, berist Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Digranesvegi 5, 200 Kópavogi, eða í tölvupósti á atvinna@greining.is  fyrir 1. mars 2010

Upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Georgsdóttir sviðstjóri í síma 5108400 og í vefpósti ingibjorg@greining.is

 


Sérfræðingur í hæfingu barna óskast á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.

Starfssvið

  • Greining, ráðgjöf og eftirfylgd til fjölskyldu og fagfólks vegna barna og unglinga með alvarleg þroskafrávik.
  • Vinna í þverfaglegu teymi.
  • Þátttaka í fræðslustarfi og rannsóknum á vegum stöðvarinnar.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Lækningaleyfi og sérfræðiviðurkenning í hæfingu barna.
  • Reynsla af þverfaglegu starfi við mat og ráðgjöf.
  • Reynsla og áhugi á fræðslu og rannsóknum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og til þátttöku í þverfaglegu samstarfi.

Um er að ræða 70% starfshlutfall. Laun greiðast skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags við ríkissjóð.

Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, berist Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Digranesvegi  5, 200 Kópavogi, eða í tölvupósti á atvinna@greining.is  fyrir 1. mars 2010 

Upplýsingar um starfið veitir Stefán J. Hreiðarsson forstöðumaður í síma 5108400 eða á netfang: stefan@greining.is


Meginhlutverk Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins er að stuðla að velferð barna með fatlanir og önnur frávik í taugaþroska og fjölskyldna þeirra í nútíð og framtíð, m.a. með þverfaglegri greiningu, ráðgjöf, fræðslu og rannsóknum á sviði fatlana.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins er framsækin stofnun með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma. Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar.

 

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica