Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Hlutverk, gildi og framtíðarsýn

14.11.2008

Á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins fer fram athugun á þroska og færni barna og unglinga með fatlanir og önnur frávik í þroska og veitt ráðgjöf í því markmiði að draga úr afleiðingum þroskaraskana eins og kostur er.

Þar fer einnig fram fræðsla til fjölskyldna þeirra og fagaðila um fatlanir barna og helstu meðferðarleiðir, svo og rannsóknir á ýmsu er varðar fatlanir barna.

Starfsemin einkennist af teymisvinnu og er leitast við að koma til móts við þarfir fjölskyldunnar eftir fremsta megni. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins þjónar börnum og unglingum með fötlun hvar sem þau búa á landinu.



Gildi Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins

Fagmennska

Við sýnum trúverðugleika, fagmennsku, færni og ábyrgð í störfum okkar og leitumst við að veita börnum og fjölskyldum þeirra bestu mögulegu þjónustu.

Virðing

Traust og heilindi einkenna samskipti okkar innbyrðis og við hagsmunaaðila.

Framsækni

Við leitumst við að vera leiðandi afl í rannsóknum og miðlun þekkingar.

Velferð

Umhyggja og næmni einkenna öll samskipti okkar.



Framtíðarsýn

Á Greiningarstöð verði veitt þjónusta byggð á bestu þekkingu sem til er á hverjum tíma með því að tengja þjónustuna við rannsóknir og miðla henni með fræðslu.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica