Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Um Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins

Hlutverk Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins er að efla lífsgæði og bæta framtíð barna og unglinga með þroskaraskanir sem geta leitt til fötlunar.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins starfar samkvæmt lögum nr. 83/2003, en tilgangur laganna er tryggja „að börn með alvarlegar þroskaraskanir sem geta leitt til fötlunar fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem miða að því að draga úr afleiðingum röskunarinnar“. Greiningarstöðin þjónar börnum og unglingum, hvar sem þau búa á landinu. Greiningarstöðin hefur það hlutverk að meta vanda barna með þroskaraskanir og veita ráðgjöf og fræðslu um meðferð og aðra íhlutun svo að draga megi úr áhrifum fötlunar á lífsgæði barns og fjölskyldu þess. Greiningarstöðin veitir einnig foreldrum og fagaðilum fræðslu um fatlanir barna og helstu meðferðarleiðir.

Þegar grunur er um alvarlegar þroskaraskanir, er barni vísað á Greiningarstöð. Helstu tilvísendur eru greiningarteymi, barnalæknar, sálfræðingar og aðrir sérfræðingar leikskóla- og grunnskólaþjónustu. Við tilvísun þarf að liggja fyrir heilsufars- og þroskasaga barnsins og frumgreining, þ.e. niðurstöður fyrstu athugana á þroskastöðu barns. Helstu ástæður tilvísana eru þroskahömlun, einhverfa og skyldar raskanir og hreyfihamlanir.

Greiningarstöðin sinnir einnig öðrum verkefnum á sviði fatlana, svo sem rannsóknum, skráningu og fræðslu og viðhaldi þekkingar á sviði fatlana barna. Greiningarstöðin er í tengslum við kennslu- og rannsóknarstofnanir, innan lands og utan.

Börn með hamlanir eiga rétt á ýmis konar aðstoð á uppvaxtarárum sínum samkvæmt lögum um málefni fatlaðra. Þau geta notið þjónustu fyrir fatlaða á vegum sveitarfélags. Foreldrar eiga oft rétt á umönnunargreiðslum frá Tryggingastofnun vegna aukinna útgjalda í tengslum við fötlun barns. Þá greiða Sjúkratryggingar fyrir ýmis konar hjálpartæki, þjálfun og ferðakostnað.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica