Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Rannsóknarnefnd

16.3.2010

Rannsóknir eru meðal lögbundinna verkefna Greiningarstöðvar.  Á Greiningarstöð er starfandi rannsóknarnefnd en hlutverk hennar  er m.a. að hvetja og styðja við aðila sem hafa áhuga á að stunda rannsóknir er tengjast viðfangsefnum stöðvarinnar.  Meginreglan er sú að Greiningarstöð verði þátttakandi í rannsóknum er nýti gögn sem orðið hafa til í starfsemi hennar.  Þegar um  utanaðkomandi aðila er að ræða þarf ávallt að vera samstarfsaðili úr hópi sérfræðinga Greiningarstöðvar.

Skila þarf umsókn til rannsóknarnefndar þar sem fram kemur tilbúin rannsóknaráætlun. Nefndin fer yfir umsóknir sem henni berast og metur hvort rannsóknaráætlanir samræmist rannsóknaráherslum og markmiðum Greiningarstöðvar og uppfylli aðferðarfræðilegar kröfur.

>> Fyrirspurnir til rannsóknarnefndar sendist á netfangið:  rannsoknir@greining.is

Þau rannsóknasvið sem helst tengjast starfsemi Greiningarstöðvar og getið er um í lögum um stofnunina eru:

Þróun, rannsóknir og dreifing á aðferðum og gögnum til greiningar á fötlunum og þroskaröskunum og á mismunandi meðferðarleiðum, rannsóknir á greiningar- og matstækjum (s.s. atferlislistum, þroskaprófum, aðlögunarmatskvörðum), fræðilegar rannsóknir á sviði fatlana og þroskaraskana, rannsóknir á gæðum og árangri þjónustu t.d. snemmtækrar íhlutunar, erfðafræði, faraldsfræði fatlana, rannsóknir á málefnum fjölskyldunnar og rannsóknir þar sem lagt er mat á lífsgæði einstaklinga með fötlun. 

Háskóli Íslands og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins hafa gert með sér samstarfssamning um kennslu og rannsóknir auk þess sem Greiningarstöð er þátttakandi í alþjóðlegu rannsóknarstarfi á sviði einhverfu, heilalömunar (CP) og fátíðra fatlana.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica