Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Um námskeið

Námskeiðsstaðir

Flest námskeiðin eru haldin í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, Gerðubergi 3-5, 111 Reykjavík, eða í húsnæði Greiningarstöðvarinnar að Digranesvegi 5 í Kópavogi. Sjá nánar í námskeið á næstunni. 

Námskeið í fjarfundi

Vakin er athygli á að þau námskeið sem eru haldin í fjarfundi er hægt að sitja á flestum fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum um allt land ef næg þátttaka fæst.

Óskir þú eftir að sitja námskeið um fjarfundabúnað er nauðsynlegt að tilgreina hvaða fræðslu- og símenntunarmiðstöð þú vilt sitja hjá. Upplýsingar um hvaða fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar eru í boði má fá hjá Írisi Björgu í síma 510-8400.

Vinsamlegast setjið í athugasemdir í skráningarformi námskeiðsins, ósk um að sitja námskeiðið í fjarfundi, með upplýsingum um staðsetningu.

Nauðsynlegt er að allir þátttakendur á fjarnámskeiði skrái sig.

Skráning

Skráningu á námskeið lýkur tveimur vikum fyrir námskeiðsdag. Greiningarstöð áskilur sér rétt til að fella niður eða fresta námskeiðum ef ekki næst nægur þátttakendafjöldi (lágmark 15 manns) eða ef aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður skapast.

Tilkynna þarf forföll eða aðrar breytingar skriflega a.m.k. hálfum mánuði fyrir námskeiðsdag eða áður en skráningu lýkur með því að senda tölvupóst á fraedsla@greining.is.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið. Nánari upplýsingar má finna hér.

Verð og greiðslufyrirkomulag

Þar sem gefin eru upp tvö verð gildir hærra verðið fyrir fagfólk og hið lægra fyrir foreldra og nána aðstandendur. Sama þátttökugjald gildir hvort sem þátttakandi er á námskeiðsstað eða situr námskeiðið í fjarfundi.

Greiðsluseðlar eru sendir í innheimtu tveimur vikum fyrir námskeiðsdag. Þátttakendur þurfa að vera búnir að greiða fyrir þáttöku á eindaga sem er u.þ.b. viku fyrir námskeið. Sjá nánar um greiðsluskilmála hér.

Mörg stéttar- og fagfélög veita félagsmönnum sínum námskeiðsstyrki og hvetjum við fólk til að kanna það hjá sínu félagi.

Námsgögn

Þátttakendur fá námsgögn afhent  við upphaf námskeiðs. Við lok námskeiðs eru þátttakendur beðnir að meta námskeiðið á þar til gerðum eyðublöðum og eru niðurstöðurnar nýttar til að bæta námskeiðahald Greiningarstöðvar. Þátttakendur fá viðurkenningarskjöl til staðfestingar á þátttöku.

Þátttakendur í fjarfundi fá námskeiðsgögn send í tölvupósti daginn fyrir námskeið.


 






neðavarl



Þetta vefsvæði byggir á Eplica