Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Einstaklingsmiðuð þjálfunarnámskeið

27.10.2009

Boðið er upp á tvö einstaklingsmiðuð þjálfunarnámskeið fyrir börn með einhverfu, annars vegar þjálfunarnámskeið í atferlisþjálfun og hins vegar í skipulagðri kennslu (TEACCH).

Sækja þarf um á eyðublaði sem fæst með því að smella hér:

>> Umsóknareyðublað um einstaklingsmiðað þjálfunarnámskeið 

Leiðbeiningar við umsókn

Vistið skjalið, fyllið út i textaboxin og sendið sem viðhengi á netfang: bryndis@greining.is,
Merkt í subject: Umsókn um einstaklingsmiðað þjálfunarnámskeið og nafn umsækjanda

Umsóknareyðublaðinu fylgir gátlisti yfir þau atiði sem eru nauðsynleg svo sérkennsla / þjálfun barns með röskun á einhverfurófi geti hafist.


Um einstaklingsmiðað þjálfunarnámskeið  í atferlisþjálfun.

Gert er ráð fyrir því að þátttakendur hafi sótt námskeið um atferlisþjálfun ( tveggja daga námskeið) áður en þjálfunarnámskeið er haldið. 

Þjálfunarnámskeið eru sniðin að hverju barni fyrir sig. Yfirleitt er eitt barn á hverju námskeiði og þeir sem tengjast þjálfun þess, svokallað þjálfunarteymi þ.e. foreldrar, þjálfarar og aðrir starfsmenn í leikskóla/skóla, ráðgjafi frá sveitarfélagi, stuðningsforeldrar og aðrir sem tengjast þjálfun og kennslu barnsins.

Mestum tíma námskeiðsins er varið í þjálfun þátttakenda, eða þeirra sem eru í teyminu sem vinnur að atferlisþjálfun þess barns sem um ræðir. Allir í hópnum fá að spreyta sig á aðferðunum undir leiðsögn leiðbeinanda. Einnig er farið yfir fræðileg og hagnýt atriði og rædd reynslan af æfingunum með barninu í hópavinnunni.

Þjálfunarnámskeið í atferlisþjálfun er 16 kennslustundir og skiptist í fjóra dagsparta. Yfirleitt er um að ræða tvo samliggjandi morgna með barni og þjálfunarteymi á Greiningarstöð og svo einn morgunn nokkrum vikum síðar á leikskólanum ef rými er til þess, annars á Greiningarstöð.

Skráningarnámskeið er fjórði dagsparturinn. Hver og einn þarf að skrá sig á skráningarnámskeið með því að senda tölvupóst á netfangið fraedsla@greining.is  þar sem fram kemur nafn þeirra aðila sem mæta, heiti leikskóla/skóla og hvaða barni þeir tengjast.

Oftast eru tveir leiðbeinendur á þjálfunarnámskeiðum.

Á skráningarnámskeið mæta þjálfarar og foreldrar nokkurra barna og læra að skrá framvindu og árangur þjálfunar, reikna út úr skráningum og halda utan um þær.


Um einstaklingsmiðað þjálfunarnámskeið í Skipulagðri kennslu.

Gert er ráð fyrir að þeir sem sitji einstaklingsmiðað námskeiðið hafi lokið almennu 3ja daga fræðslunámskeiði um Skipulagða kennslu áður en þjálfunarnámskeið er haldið.

Þjálfunarnámskeið eru sniðin að hverju barni fyrir sig. Yfirleitt er eitt barn á hverju námskeiði og þeir sem tengjast þjálfun þess, svokallað þjálfunarteymi þ.e. foreldrar, þjálfarar og aðrir starfsmenn í leikskóla/skóla, ráðgjafi frá sveitarfélagi, stuðningsforeldrar og aðrir sem tengjast þjálfun og kennslu barnsins.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist færni í þeim aðferðum sem skipulögð kennsla byggir á og geti tileinkað sér þær á heimili sínu og í skólanum.  

Námskeiðið er 12 kennslustundir að lengd í heild og skiptist í tvo til þrjá hluta

Fyrsti hluti námskeiðsins er almenn fræðsla um einhverfu og hugmyndafræði kennsluaðferðanna. en mestum tíma er varið í þjálfun þeirra sem vinna með barnið í viðkomandi skóla og fjallað um þarfir barnsins hvað varðar dagsskipulag og sjónræna stýringu. Námskeiðið fer yfirleitt fram í skóla barnsins.

Oftast eru tveir leiðbeinendur á þjálfunarnámskeiðum.

 


Verð á þjálfunarnámskeiðum

Hver hálfur dagur eða 4 kennslustundir kostar 20.000 fyrir allan hópinn.

Nanari upplýsingar um verð og fyrirkomulag eru veittar á netfangi bryndis@greining.is


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica