Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Námskeið

2.7.2009

Á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins fer fram öflugt fræðslustarf. Frá því að stofnunin tók til starfa hefur á hverju vori verið haldin tveggja daga ráðstefna sem á sér fastan sess meðal þeirra sem starfa að málefnum fatlaðra. Þá er tekið fyrir eitthvað sérstakt efni sem varðar börn og ungmenni með þroskafrávik og fatlanir. Á undanförnum árum hefur Greiningarstöðin einnig skipulagt margar stærri ráðstefnur m.a. með erlendum fyrirlesurum og þátttakendum, oft í samstarfi við aðrar stofnanir og samtök.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins býður upp á margvísleg fræðslunámskeið um ýmis efni sem tengjast fötlunum barna, s.s. um ýmsar fatlanir, um þjálfunar- og meðferðarleiðir og fleira. Í mörgum tilfellum er hægt að óska eftir að tengjast námskeiði um fjarfundabúnað.  
Sjá námskeið á næstunni

Námskeiðabæklingur

Greiningarstöðin gefur tvisvar sinnum á ári út yfirlitsbækling um námskeið á næstunni. Hægt er að prenta hann út hér. grr_namskeid_haust10_low

Fræðslunámskeiðin eru ætluð þeim sem vinna með börnum með þroskafrávik og fatlanir og eru einnig opin foreldrum og öðrum aðstandendum. Á hverju ári sækir hátt á annað þúsund manns þessi námskeið, s.s. starfsfólk leik- og grunnskóla, fagfólk úr ýmsum faggreinum, auk foreldra.

Markmiðið námskeiðanna er að auka þekkingu og efla skilning á þörfum barna og ungmenna með þroskaraskanir, skapa vettvang fyrir fólk sem vinnur að sambærilegum verkefnum og í sumum tilvikum að kenna sérhæfðar aðferðir og vinnubrögð í meðferðar- eða greiningarstarfi.

Auk opinna námskeiða býður Greiningarstöð upp á styttri kynningar í leik- og grunnskólum skjólstæðinga sinna.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica