Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Námskeið

Ráðagóðir foreldrar

Námskeið í hegðunarstjórnun fyrir foreldra barna með þroskaraskanir.

5.október - 16.nóvember 2010

  • Staðsetning: Greiningarstöð
  • Tími: kl. 20:00 - 22:15
  • Verð: Aðstandandi: 9.000 kr. Háskólanemi: 9.000 kr.
  • Skráningartímabil: 23.ágúst - 30.september 2010

 

Námskeiðið er haldið á Greiningarstöð á þriðjudagskvöldum frá 5.október til 16. nóvember 2010 kl. 20.00 - 22.15. Alls 6 skipti

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Námskeiðið er ætlað foreldrum og nánum aðstandendum barna með þroskaraskanir, á aldrinum 2-12 ára, sem hafa notið þjónustu Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins.

Efni, markmið og vinnulag

Radagodir_foreldrar

Tilgangur námskeiðsins er að styðja foreldra í uppeldishlutverkinu og auka jákvæð samskipti þeirra við börn sín. Börn með þroskaraskanir eiga meira á hættu að þróa með sér ýmis konar hegðunarerfiðleika, sem gerir uppeldi þeirra oft á tíðum mjög krefjandi. Mikilvægt er því að styðja við bak foreldra í þessu krefjandi verkefni. Kenndar verða markvissar leiðir til árangurs. Námskeiðið byggist á stuttum fyrirlestrum, umræðum, myndböndum, hlutverkaleikjum og heimavinnu. Námskeiðið byggist á hugmyndafræði hagnýtrar atferlisgreiningar.

Umsjón

Sigurrós Jóhannsdóttir, sálfræðingur
Sigríður Lóa Jónsdóttir, sálfræðingur

 

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica