Beint í leiðarkerfi vefsins.
Námskeiðið er haldið í Miðstöð símenntunar í Menntasetrinu við lækinn og um fjarfundabúnað til Háskólans á Akureyri. Þátttakendur á Alkureyri skrái sig hér.
Mögulegt er að senda til fleiri staða, ef óskað er.
Óskir þú eftir að sækja námskeið um fjarfundabúnað er nauðsynlegt að tilgreina tengilið á hverju svæði. Best er að hafa samband við næstu fræðslu- eða símenntunarmiðstöð og kanna möguleika á að sækja námskeið í fjarfundi þar og fá upplýsingar um tengilið. Hafa ber í huga að mikilvægt er að fyrirvari sé nægur og aldrei minni en 10 dagar.
Vinsamlegast setjið í athugasemdir í skráningarformi námskeiðsins, ósk um að sitja námskeiðið í fjarfundi, með upplýsingum um tengilið, netfang tengiliðar og staðsetningu. Tengiliður fær senda IP tölu nokkrum dögun fyrir námskeið og er gert ráð fyrir að hann hringi inn um 15 mínútum áður en það hefst.
Nauðsynlegt er að allir þátttakendur skrái sig.
Fagfólki svo sem kennurum, sérkennurum, stuðningsfulltrúum, sérkennsluráðgjöfum, sálfræðingum, þroskaþjálfum og öðrum sem koma að kennslu og þjálfun barna og unglinga með þroskafrávik.
Efla skilning og þekkingu fagfólks á þörfum barna og unglinga með þroskafrávik í grunnskólanum þar sem áhersla verður lögð á þroskahömlun. Markmiðið er að veita fræðslu sem nýtist í daglegu starfi.
Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum og umræðum.
Sólveig Norðfjörð sálfræðingur og Margrét Valdimarsdóttir barna- og unglingageðlæknir
09:00 - 09:05 Kynning
09:05 - 10:00 Þroskahömlun
Nám og stuðningur í skóla.
Sólveig Norðfjörð, sálfræðingur
Kaffi
10:20 – 11:00 Færni og þátttaka í skóla
Dagleg viðfangsefni og aðlögun umhverfis
Þóra Leósdóttir, iðjuþjálfi
11:00 - 11:40 Samskipti við jafnaldra
Þátttaka, vinátta og einelti
Sólveig Norðfjörð, sálfræðingur
11:40 – 12:00 Umræður
Hádegishlé
13:00 -13.30 Geðræn einkenni
Kvíði, þunglyndi og ofvirkni hjá börnum með þroskahömlun.
Margrét Valdimarsdóttir, barna- og unglingageðlæknir
13:30 - 14:10 Hegðunarerfiðleikar barna með þroskafrávik
Fyrirbyggjandi aðgerðir og meðferð við hegðunarvanda barna með þroskafrávik.
Atli F. Magnússon, atferlisfræðingur
Kaffi
14:40 - 15:00 Fjölskylda og samfélag
Áhrif fötlunar á fjölskylduna. Samskipti foreldra og skóla.
Elín Konráðsdóttir og Helga Þorleifsdóttir, félagsráðgjafar
15:00 – 15:30 Við erum ekki öll eins
Hrannar Halldórsson Bachman, nemandi í Hagaskóla
15:30 - 16:00 Umræður og námskeiðslok