Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Námskeið

Félagsfærni og þátttaka 6 - 11 ára barna með Aspergersheilkenni (fyrir foreldra)

Námskeið fyrir foreldra

27.október 2010

  • Staðsetning: Menntasetrið við Lækinn
  • Tími: kl. 13:00 - 17:00
  • Verð: Aðstandandi: 4.600 kr. Háskólanemi: 4.600 kr.
  • Skráningartímabil: 10.ágúst - 20.október 2010


Staðsetning

Námskeiðið er haldið í Miðstöð símenntunar í Menntasetrinu við lækinn og um fjarfundabúnað til Háskólans á Akureyri. Þátttakendur á Alkureyri skrái sig hér.

Mögulegt er að senda til fleiri staða, ef óskað er.

Námskeið í fjarfundi

Óskir þú eftir að sækja námskeið um fjarfundabúnað er nauðsynlegt að tilgreina tengilið á hverju svæði. Best er að hafa samband við næstu fræðslu- eða símenntunarmiðstöð og kanna möguleika á að sækja námskeið í fjarfundi þar og fá upplýsingar um tengilið. Hafa ber í huga að mikilvægt er að fyrirvari sé nægur og aldrei minni en 10 dagar.

Vinsamlegast setjið í athugasemdir í skráningarformi námskeiðsins, ósk um að sitja námskeiðið í fjarfundi, með upplýsingum um tengilið, netfang tengiliðar og staðsetningu. Tengiliður fær senda IP tölu nokkrum dögun fyrir námskeið og er gert ráð fyrir að hann hringi inn um 15 mínútum áður en það hefst.

Nauðsynlegt er að allir þátttakendur skrái sig.

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Námskeiðið er ætlað foreldrum barna á aldrinum 6-11 ára sem eru með Aspergersheilkenni eða svipaða röskun á einhverfurófi. Gert er ráð fyrir að þeir sem sækja þetta námskeið hafi lokið grunnnámskeiði.

Markmið

Að efla þekkingu á sérstökum þörfum einstaklinga með Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir. Áhersla verður á þátttöku og færni við ýmis viðfangsefni sem tengjast námi og félagslegum samskiptum í skólanum. Ennfremur á viðurkenndar leiðir í kennslu og þjálfun félagsfærni hjá þessum nemendum. Að þátttakendur verði betur í stakk búnir til að mæta þörfum nemenda á markvissan hátt með því að nýta einstaklingsnámskrá og þverfaglegt samstarf. Að skapa vetttvang fyrir foreldra og aðstandendur sem fást við sambærileg verkefni.

Efni

Fjallað verður stuttlega um einhverfurófið og hvað er líkt og ólíkt með Aspergersheilkenni og einhverfu. Ennfremur um félagslega færni og skilning, skólafærni, einstaklingsnámskrá og yfirfærslu náms. Kynntar verða leiðir til að meta og vinna með ofangreinda þætti. Tekið er mið af þörfum barna á aldrinum 6-11 ára í grunnskóla. Námskeiðið er byggt á fyrirlestrum hópavinnu og umræðum.

Umsjón

Laufey I. Gunnarsdóttir þroskaþjálfi og Sigurrós Jóhannsdóttir sálfræðingur.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica