Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Námskeið

Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir á einhverfurófi

Grunnnámskeið

19.október 2010

  • Staðsetning: Menntasetrið við Lækinn
  • Tími: kl. 09:00 - 16:00
  • Verð: Fagaðili: 14.400 kr. Aðstandandi: 3.600 kr. Háskólanemi: 3.600 kr.
  • Skráningartímabil: 10.ágúst - 12.október 2010

Staðsetning

Námskeiðið er haldið í Miðstöð símenntunar í Menntasetrinu við lækinn og um fjarfundabúnað til Háskólans á Akureyri. Þátttakendur á Alkureyri skrái sig hér.

Mögulegt er að senda til fleiri staða, ef óskað er.

Námskeið í fjarfundi

Óskir þú eftir að sækja námskeið um fjarfundabúnað er nauðsynlegt að tilgreina tengilið á hverju svæði. Best er að hafa samband við næstu fræðslu- eða símenntunarmiðstöð og kanna möguleika á að sækja námskeið í fjarfundi þar og fá upplýsingar um tengilið. Hafa ber í huga að mikilvægt er að fyrirvari sé nægur og aldrei minni en 10 dagar.

Vinsamlegast setjið í athugasemdir í skráningarformi námskeiðsins, ósk um að sitja námskeiðið í fjarfundi, með upplýsingum um tengilið, netfang tengiliðar og staðsetningu. Tengiliður fær senda IP tölu nokkrum dögun fyrir námskeið og er gert ráð fyrir að hann hringi inn um 15 mínútum áður en það hefst.

Nauðsynlegt er að allir þátttakendur skrái sig.

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa með börnum með Aspergersheilkenni og börnum með röskun á einhverfurófi án stórvægilegra frávika í mál- og vitsmunaþroska, s.s. grunnskólakennurum og öðru starfsfólki grunnskóla. Einnig foreldrum, aðstandendum og öðrum sem hafa áhuga.

Markmið

Efla þekkingu þátttakenda á einhverfurófinu og einkum á þörfum einstaklinga með Aspergersheilkenni. Auka gæði þeirrar þjónustu sem veitt er þessum hópi barna og fjölskyldum þeirra. Efla færni til að byggja upp íhlutun þar sem markviss vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi. Skapa vettvang fyrir foreldra og fagfólk sem er að fást við sambærileg verkefni.

Efni

Fjallað verður m.a. um einhverfurófið og muninn á Aspergersheilkenni og einhverfu. Kynntar verða leiðir í uppeldi og kennslu, þar sem áhersla er lögð á félagslega færni og félagslegan skilning. Tekið er mið af þörfum barna á aldrinum 6-18 ár, í grunnskóla og framhaldsskóla. Einnig verður fjallað um hvenær og hvernig eigi að upplýsa einstakling um ástand sitt og hvernig skólaganga og lítur út frá sjónarhóli ungrar konu með Aspergersheilkenni að ganga í skóla og byggja upp líf sitt. Námskeiðið er byggt á fyrirlestrum myndböndum og umræðum.

Umsjón

Sigrún Hjartardóttir, leikskólasérkennari og Laufey I Gunnarsdóttir, þroskaþjálfi



Þetta vefsvæði byggir á Eplica