Beint í leiðarkerfi vefsins.
Staðsetning
Námskeiðið er haldið í Miðstöð símenntunar í Menntasetrinu við lækinn og um fjarfundabúnað til Háskólans á Akureyri. Þátttakendur á Alkureyri skrái sig hér.
Mögulegt er að senda til fleiri staða, ef óskað er.
Óskir þú eftir að sækja námskeið um fjarfundabúnað er nauðsynlegt að tilgreina tengilið á hverju svæði. Best er að hafa samband við næstu fræðslu- eða símenntunarmiðstöð og kanna möguleika á að sækja námskeið í fjarfundi þar og fá upplýsingar um tengilið. Hafa ber í huga að mikilvægt er að fyrirvari sé nægur og aldrei minni en 10 dagar.
Vinsamlegast setjið í athugasemdir í skráningarformi námskeiðsins, ósk um að sitja námskeiðið í fjarfundi, með upplýsingum um tengilið, netfang tengiliðar og staðsetningu. Tengiliður fær senda IP tölu nokkrum dögun fyrir námskeið og er gert ráð fyrir að hann hringi inn um 15 mínútum áður en það hefst.
Nauðsynlegt er að allir þátttakendur skrái sig.
Foreldrum og fagfólki svo sem kennurum, sérkennurum, stuðningsfulltrúum, sérkennsluráðgjöfum, þroskaþjálfum, sálfræðingum og öðrum sem koma að kennslu og þjálfun barna og unglinga með Downs-heilkenni.
Efla skilning og þekkingu fagfólks á þörfum barna og unglinga með Downs-heilkenni í grunnskólanum. Markmiðið er að veita fræðslu sem nýtist í daglegu starfi.
Börn og unglingar með Downsheilkenni í grunnskóla: nám, þátttaka, hegðun, heilsa, líðan og fjölskyldan. Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum og umræðum.
-Atli Magnússon, atferlisfræðingur
-Hrönn Björnsdóttir, félagsráðgjafi
-Ingólfur Einarssons, barnalæknir
-Sólveig Norðfjörð, sálfræðingur
.