Beint í leiðarkerfi vefsins.
Námskeiðið er haldið í Miðstöð símenntunar í Menntasetrinu við lækinn og um fjarfundabúnað til Háskólans á Akureyri. Þátttakendur á Akureyri skrái sig hér.
Mögulegt er að senda til fleiri staða, ef óskað er.
Námskeið í fjarfundi
Óskir þú eftir að sækja námskeið um fjarfundabúnað er nauðsynlegt að tilgreina tengilið á hverju svæði. Best er að hafa samband við næstu fræðslu- eða símenntunarmiðstöð og kanna möguleika á að sækja námskeið í fjarfundi þar og fá upplýsingar um tengilið. Hafa ber í huga að mikilvægt er að fyrirvari sé nægur og aldrei minni en 10 dagar.
Vinsamlegast setjið í athugasemdir í skráningarformi námskeiðsins, ósk um að sitja námskeiðið í fjarfundi, með upplýsingum um tengilið, netfang tengiliðar og staðsetningu. Tengiliður fær senda IP tölu nokkrum dögun fyrir námskeið og er gert ráð fyrir að hann hringi inn um 15 mínútum áður en það hefst.
Nauðsynlegt er að allir þátttakendur skrái sig.
Námskeiðið er ætlað foreldrum og kennurum barna og unglinga með Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir á einhverfurófi. Æskilegt er að þátttakendur hafi sótt námskeiðið: Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir á einhverfurófi.
Börn og ungmenni sem eru með röskun á einhverfurófi og jafnframt góðan vitsmunaþroska spyrja mörg hver beinna eða óbeinna spurninga um ástand sitt sem þarf að bregðast við. Á þessu námskeiði verður skoðað hvaða leiðir sé hægt að fara þegar útskýra á ástandið fyrir einstaklingum sem hafa greinst með röskunina og eru á mismunandi aldri og þroskastigi. Fjallað verður um rétt einstaklingsins til upplýsinga og velt upp ýmsum spurningum eins og m.a. hvað mæli með því að útskýra ástandið fyrir viðkomandi, hvenær það sé tímabært, hver ætti að taka það að sér og hvort það sé ráðlegt í öllum tilfellum.
Fyrirlestur, verkefni, hópavinna og umræður.
Sigríður Lóa Jónsdóttir, sálfræðingur og sérfræðingur í fötlunum barna